Covid veldur heilaskemmdum

Ný rannsókn bendir til þess að hluti heilans rýrni meira hjá þeim sem fengið hafa Covid en þeim sem hafa sloppið.

Sýnataka
Sýnataka Talið er að meira en 70% þjóð­ar­innar hafi fengið Covid-19. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rannsókn sem felur í sér að tæp 800 manns fóru í heila­skönnun hefur bent til þess að jafnvel milt smit af Covid-19 leiðir til rýrnunar á heilanum.

Rýrnunin mælist aðallega á svæði heilans sem tengist lyktar­skyni, en önnur virkni virðist líka hafa orðið fyrir áhrifum. Megin­niðurstöður rann­sóknarinnar er þríþætt: Aukin rýrnun í þykkt gráa efnisins í heilanum, meiri vefja­skemmdir í þeim hluta heilans sem fer með lyktar­skyn og meiri almenn rýrnun heilans eftir Covid-smit.

Rann­sóknin var birt í tíma­ritinu Nature og er talin sú stærsta sinnar tegundar og sú fyrsta þar sem fólk var látið undir­gangast heil­askanna fyrir og eftir smit. Megin­niðurstaðan var að þau 401 sem fengið höfðu Covid reyndust vera með meiri rýrnun í gráa efninu í heilanum en þau 384 sem ekki höfðu fengið Covid. Þátt­takendur í rann­sókninni fóru í heil­askanna bæði áður en þau fengu Covid og að meðaltali fjórum og hálfum mánuði eftir smit. Það kemur sérfræðingum á óvart hversu mikil rýrnun á heilanum varð við Covid-smit, en flestir þátt­takendur í rann­sókninni fengu aðeins mild einkenni.

Allt að 2% rýrnun heilavefs

Eðlilegt er að fólk missi 0,2% til 0,3% af gráa efninu á minnis­tengdum svæðum heilans eftir því sem það eldist. Rann­sóknin leiddi í ljós að þau sem höfðu smitast af Covid urðu fyrir 0,2% til 2% viðbótar­rýrnun í heilanum. 

Þátt­takendur fóru einnig í próf sem kanna átti vits­munalega skerðingu sem tengist öldrun, virkni og vinnslu­hraða heilans. Prófið fól í sér að tengja slóð milli punkta með tölum og bókstöfum. Þau sem höfðu orðið fyrir mestri rýrnun á heilavef stóðu verst að vígi í prófinu.

„Þar sem frávikin í heila þátt­takenda virðast að hluta tengjast missi á lyktar­skyni er hugsanlegt að endur­heimt þess hafi í för með sér að frávikin verði minna áberandi eftir því sem tíminn líður,“ segir Gwenaëlle Douaud, prófessor í tauga­fræði við Oxford-háskóla í samtali við CNN. Hún lagði til að þátt­takendur færu aftur í skanna að tveimur árum liðnum til þess að kanna hversu viðvarandi heila­skaðinn er.

„Það kemur mér á óvart hversu mikið glataðist og hversu almennt það er,“ hefur New York Times eftir Serena Spudich, tauga­fræðingi hjá Yale School of Medicine, sem kom þó ekki að rann­sókninni. „Ég hefði ekki búsist við að sjá svona mikla hlutfalls­breytingu.“

Rýrnun heila­efnis er helst greinanleg í dreka­fellingum (e. parahippocampal gyrus) og hægri tótta­rennisberki (e. orbitofrontal cortex). Þau svæði heilans eru ekki aðeins tengd lyktar­skyni, heldur einnig minni og annarri færni. Covid-smitaðir stóðu sig þó ekki verr á minnis­prófi en aðrir. Einn hluti heilans hefur hins vegar aldrei eina virkni, heldur fjölþætta, og er orsaka­samhengið of flókið til þess að greina endanlega hver áhrifin eru af rýrnun á einum stað.

Óljós atriði

Meðal annmarka rann­sóknarinnar eru að rann­sakendur höfðu ekki upplýsingar um einkenni þátt­takenda og hvort þau smituðu hefðu orðið fyrir lang­varandi covid-veikindum (e. long covid) eða svokallaðri heilaþoku. Þá er ekki vitað hversu vel rann­sóknin á við yngstu aldurs­hópana, þar sem þátt­takendur voru á aldrinum 51 til 81 árs, en áhrifin á vitræna getu greindust meiri eftir aldri. Loks er óljóst hversu viðvarandi áhrifin á heilann eru.

Til að varpa ljósi á áhrifin væri hægt að gera frekari rann­sóknir, eins og að greina hvort hefð­bundin flensa og aðrar kóróna­veirur hafi sambærileg áhrif á heilann. Að auki á eftir að gera rann­sóknir á hegðun sem tengja mætti breytingum á heilanum. 

„Það er eitthvað sem gerðist í heilanum á þessu fólki,“ segir Spudich, tauga­sérfræðingur við Yale, við New York Times.

Alls hafa 40% Íslendinga nú smitast af Covid svo sannað þyki með sýnatöku. Talið er þó að mun fleiri hafi fengið Covid, eða um 70% lands­manna. 68 manns eru á sjúkra­húsi með Covid-19, ekki öll þó vegna Covid, og 6 eru smituð á gjörgæslu.

Rann­sóknina má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Mér hefur tekist að forðast smit, hingað til, og mun halda því áfram eins lengi og mér framast er unnt. Það kann einhver að spyrja manneskju eins og mig, eitthvað á þessa leið:
    - "Af hverju ertu að passa þig, þú getur ekki komist hjá því að smitast og veikjast af COVID-19?"

    Mitt svar er svona:
    - Já, það er rétt, mér tekst ekki að forðast sjúkdóminn endalaust, en því lengur sem mér tekst að forðast hann, því meiri líkur eru á fleiri meðferðar- og lyfjaúrræðum ásamt sífellt fleiri rannsóknarniðurstöðum er segja til um afleiðingar og áhættuþætti. Svo kemur að því að tíðni smita lækkar og þá minnka líkurnar á að smitast að sama skapi.

    Farið varlega og takið ábyrgð á eigin heilsu! Hjálpumst að við að verja þá sem eru í sérstakri áhættu; fólk með undirliggjandi sjúkdóma og aðra sem eru viðkvæmir fyrir því að veikjast illa.
    2
  • BS
    Bylgja Sigurjónsdóttir skrifaði
    Úff ! Ferlega er ég orðin þreytt á endalausum “fréttum” af covid !

    Allt svo óljóst með afleiðingar.Samkvæmt rannsóknum.
    Meira dramað alltaf .


    Rólegir kúrekar.!
    -4
  • Mummi Týr skrifaði
    Hvernig kemur þá næsta ríkistjórn til með vera skipuð eftir hjarðofnæmi og nú er komin skýring á af hverju slógan Framsóknar virkaði svona vel í haust....
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár