Engin efni í skaðlegu magni fundust í námunda við Helguvík

Samkvæmt niður­stöðum mælinga Norsku loft­rannsóknar­stofnunarinnar á sýnum sem tekin voru á tíma­bilinu 21. maí til 23. júní í ár fundust engin efni í þeim styrk að þau gætu haft skaðleg áhrif á íbúa nærliggjandi svæða.

Engin efni voru í skaðlegu mæli í þeim sýnum sem tekin voru í Helguvík vegna verksmiðju United Silicon. Þetta kemur fram í niður­stöðum mælinga Norsku loft­rannsóknar­stofnunarinnar á rokgjörnum lífrænum efna­samböndum vegna kísil­verksmiðju United Silicon sem borist hafa félaginu og Umhverfis­stofnun.

Alls hafi 200 efni verið mæld en meðal þeirra 35 efna, sem hæst mældust, hafi ekkert þeirra verið á þeim kvarða sem þyki óeðli­legur í úthverfi eða þéttbýli.

Ákvörðun Umhverfis­stofnunar um stöðvun reksturs Sameinaðs Sílikons hf. er samt sem áður óbreytt og er rekstrar­aðila óheimilt að endurræsa ofn verksmiðjunnar nema með skriflegri heimild frá stofnuninni að loknum fullnægjandi endur­bótum og ítarlegu mati á þeim. Þetta kemur fram á vefsíðu Unhverfisstofnunar. 

Mælingarnar voru gerðar á sýnum sem tekin voru tíma­bilinu 21. maí til 23. júní í ár. Sýnin voru tekin í íbúða­byggð í námunda við verksmiðjuna, á lóð verksmiðjunnar og inn í henni þar sem styrk­leiki efna ætti að vera hvað mestur, það er inn í ofnhúsi og síúhús. Þess ber þó að geta að á umræddu tímabili voru kvartanir til Umhverfis­stofnunar vegna lyktar fremur fáar. Þetta segir í frétta­tilkynningu frá United Silicon.

Í samantekt skýrslunnar segir meðal annars að efna­mælingarnar þyki dæmi­gerðar fyrir það sem þekkist utandyra yfir sumartíma í íbúða­byggð. Efna­styrkur í ofnhúsi var fremur lágur miðað við það sem þekkist í samskonar iðnaði, að því er segir í skýrslunni. Í síuhúsi, það er reyksíu verksmiðjunnar, voru vísbendingar um lífrænt anhýdríð sem gæti valdið lykt og tíma­bundinni ertingu í öndunar­vegi og augum, tekið skal fram að síuhús er hluti hreinsi­búnaðar verksmiðjunnar.

Í skýrslunni kemur fram að ekki hafi reynst unnt að mæla form­aldehýði á umræddu tímabili. Umhverfis­stofnun óskaði í sumar eftir greiningu á form­aldehýði í nágrenni United Silicon og í útblæstri síuhúss fyrir­tækisins ásamt mælingu á öðrum gastegundum. Umsjón mælinga var í höndum Efna­greiningar Keldna­holti/Nýsköpunar­miðstöð.

„Við teljum þetta mikilvægt gagn í vinnu við að koma verksmiðjunni í rekstrar­hæft horf. Enn er þó mikið verk óunnið. Mikil­vægast er að vera viss um að öryggi íbúa á svæðinu og starfs­manna sé ekki ógnað og er því niður­stöður mælinga sem þessara forgangs­atriði. Við munum halda þeirri vinnu áfram, fyrir liggja tillögur frá NILU um frekari mælingar en það er ekki hægt að ráðast í þær nema leyfi fáist á því að ræsa verskmiðjuna á ný,“ segir Karen Kjartans­dóttir, talsmaður United Silicon.

NILU er sjálfstæð rannsóknar­stofnun með rúmlega þrjátíu ára reynslu af efna­mælingum og hefur byggt upp mikið gagnasafn sem notuð eru til saman­burðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár