Jon Stewart að hætta í „The Daily Show“, sjáðu myndband

Jon Stewart, sem stýrt hefur þættinum „The Daily Show“ í 16 ár og gert hann að einum af beittustu frétta­skýringa­þáttum Banda­ríkjanna, þrátt fyrir að vera að upplagi hæðnis- og grín­þáttur, hefur ákveðið að hætta sem stjórn­andi hans. Hann greindi frá þessu í gær.

Í frétt New York Times segir að samningur Stewart við Comedy Central, sem hefur sýnt þættina frá upphafi, renni út í september næst­komandi og hann hefur ákveðið að endurnýja samninginn ekki. Stewart sagði áhorf­endum sínum að hann væri enn ekki búinn að ákveða nákvæmlega hvenær hann myndi hætta. Það gæti orðið í júlí en það gæti líka orðið í desember. „Í hjarta mínu þá veit ég að það er komin tími fyrir einhvern annan,“ sagði Stewart og átti þar við næsta stjórn­anda þáttarins, sem mun lifa áfram.

http://youtu.be/8KM_kGxVUJw

Undir stjórn Stewart varð „The Daily Show“ gríðar­lega vinsæll og festi Comedy Central í sessi sem alvöru leikanda á hinum harða kvöld­þátta­markaði í Banda­ríkjunum, þar sem keppinautarnir eru þættir á borð við „Late Show“ með David Letterman og „Tonight Show“ með Jay Leno. Um 2,2 milljónir manna horfðu að meðaltali á hvern þátt í Banda­ríkjunum í fyrra.

Á þeim tíma sem Stewart stýrði þættinum vann hann 20 Emmy verðlaun og gaf mörgum þekktum sjónvarps­mönnum sín fyrstu alvöru tækifæri í sjónvarpi. Þeirra á meðal eru Steve Carell, Stephen Colbert og John Oliver.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár