Aldrei verið fleiri á flótta í heiminum

Tæpar 70 millj­ónir manna voru hrakin frá heim­ilum sínum og rúmar 25 millj­ónir þeirra telj­ast flótta­menn. Báðar tölur eru þær hæstu sem mælst hafa í mörg ár.

Róhingjar á flótta.
Róhingjar á flótta. Mynd: Michael Drost Hansen

Alls höfðu 68,5 millj­ónir manna verið hrakin burt frá heim­ilum sínum um allan heim undir lok síð­asta árs, sam­kvæmt nýbirtri skýrslu flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þar af voru flótta­menn 25,4 millj­ónir og hafa þeir aldrei verið jafn­margir frá því mæl­ingar SÞ hófust.

Samkvæmt skýrsl­unni hýsir Tyrkland fleiri flótta­menn enn nokkur önnur þjóð, fjórða árið í röð. Ef tekið er til­lit til íbúa­fjölda hins vegar hafa Líbanon og Jórdanía vinn­ingin, en fjórð­ungur íbúa í Líbanon og þriðj­ungur íbúa í Jórdaníu telj­ast til flótta­manna. Alls eru 85% flótta­manna stað­sett í þró­un­ar­löndum, en flestir þeirra flýja til nágranna­landa sinna. Dreifing flótta­manna eftir þjóð­ernum er ójöfn, en 68% allra flótta­manna koma frá ein­ungis fimm löndum: Sýrlandi, Afghanistan, Suður-Súdan, Myanmar og Sómalíu.

Fjöldi þeirra sem skráðir eru flótta­menn sam­kvæmt UNRWA-til­skipun SÞ nemur 25,4 millj­ónum manna. Þetta eru hæstu tölur í tíu ár, eða frá því að mæl­ingar hófust. Rúmur helm­ingur þeirra eru börn, og þar af eru 173,800 þeirra án for­ráða­manna eða aðskilin frá for­eldrum sínum. Þetta er í fyrsta skipti sem SÞ safnar upp­lýs­ingum um þennan hóp, en sam­kvæmt skýrsl­unni er mik­il­vægt fyrir rík­is­stjórnir allra landa að gera slíkt hið sama þar sem börn án fylgdar sé við­kvæm­asti hópur flótta­manna.

Myndband Sam­ein­uðu Þjóðanna um nýút­gefna skýrslu.

Alls voru 68,5 millj­ónir manna ver­gangi í lok árs 2017 og höfðu ekki verið fleiri frá upp­hafi mæl­inga SÞ árið 2003. Meðal þeirra voru 40 millj­ónir manna í eigin heima­landi og 3,1 milljón hæl­is­leit­enda.

Samhliða met­fjölda flótta­manna á heims­vísu hefur fjöldi hæl­is­leit­enda til Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins minnkað ört, eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag. Hæl­is­um­sóknir til aðild­ar­ríkja sam­bands­ins voru tæpar 730.000 tals­ins árið 2017, sem er um 44% lækkun frá því árinu á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár