Corbyn skorar á Cameron í kappræður

Jeremy Corbyn, formaður Verkamanna­flokksins, hefur skorað á David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands í að mæta sér og formönnum annarra flokka í sjónvarps­kappræðum til að ræða stöðu Bretlands. Corbyn telur að slíkar kappræður muni hjálpa til við að draga Breta að þátttöku í stjórn­málum. Nicola Sturgeon, formaður Skoska þjóðar­flokksins, og Tim Farron, formaður Frjáls­lyndra demókrata, hafa bæði sagt að þau muni taka þátt ef Cameron samþykkir að gera það líka. Samkvæmt frétt Independent um málið ætlar forsætis­ráðherrann, sem er einnig formaður Íhalds­flokksins, að skoða tillöguna.

Áskorun Corbyn kemur í kjölfar þess að rannsókn sem gerð varð við háskólann í Leeds var birt, en niður­stöður hennar sýndu að sjónvarps­kappræður sem fram fóru í aðdrag­anda síðustu þing­kosninga í Bretlandi höfðu mjög jákvæð áhrif á afskipti almennings að stjórn­málum. Samkvæmt rann­sókninni sögðu um 70 prósent þeirra sem horfðu á sjónvarps­kappræður í fyrsta sinn að þeir vissu nú meira um flokks­leiðtoganna en áður og um 60 prósent sögðust vita meira um stefnumál þeirra. Corbyn segir í stöðu­uppfærslu á Facebook að hann vilji með kapp­ræðunum gera forsætis­ráðherrann og ríkis­stjórnina ábyrga gagnvart almenningi oftar en bara í kringum kosningar. Hann segir vera að færa stjórn­málin til fólksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár