Ökutæki með blandaða orkugjafa aldrei vinsælli

Fjöldi ökutækja á Íslandi sem notast við rafmagn eða blandaða orkugjafa er um 6,7 prósent ökutækja á skrá og í umferð.

Rafmagnsbílar verða sífellt vinsælli.
Raf­magns­bílar verða sífellt vin­sælli. Mynd: EPA

Ökutæki sem notast við blandaða orkugjafa auk rafmagns­bíla eru um 6,7 prósent ökutækja á skrá og í umferð. Þetta kemur fram í skýrslu Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra um framkvæmd samgöngu­áætlunar 2017 sem lögð var fyrir Alþingi í maí 2019.

Fjöldi ökutækja á skrá og í umferð jókst úr 199.865 árið 2016 í 222.248 árið 2018. Þar af fjölgaði rafmagns­bílum úr 1052 í 2748 á árunum 2016 til 2018. Vissulega er það hröð aukning, en þó stendur fjöldi rafmagns­bíla einungis í um 1,2 prósent allra ökutækja á skrá og í umferð.

Fjöldi ökutækja sem hafa blandaðan orkugjafa jókst mikið á tveimur árum

Ef litið er til ökutækja með blandaðan orkugjafa, svo sem bensín/dísel og metan, bensín/dísel og rafmagns­tengil og svo bensín/dísel og rafmagn, stóð fjöldi þeirra ökutækja á skrá og í umferð árið 2016 í 4.323 talsins.

Ef litið er hins vegar til ökutækja sem hafa blandaða orkugjafa kemur í ljós að árið 2018 eru ökutæki með blandaðan orkugjafa 12.144. Lagt saman við ökutæki sem notast við rafmagn er fjöldinn 14.862 talsins eða um 6,7 prósent ökutækja á skrá og í umferð. Þá er ekki með talið bílar sem nýta metan, metanól eða etanól. Það er því stökk úr 4.323 árið 2016 í 14.862 árið 2018.

Ef litið er til ökutækja sem nota metan sem orkugjafa voru þau 115 talsins árið 2018 og standa þar með um það bil í stað frá árinu 2016 þegar þau voru 114 talsins.

Nýskráningar bifreiða hríðféll í hruninu en hafa nú náð nýjum hæðum. Árið 2009 voru undir 5.000 nýskráningar miðað við um 30.000 nýskráningar árið 2017.

Tíu prósent bifreiða verði knúnar af vistvænum orkugjöfum 2020

Samkvæmt skýrslunni miða markmið um orku­skipti í samgöngu­áætlun að því að tíu prósent bifreiða verði knúnar af vistvænum orku­gjöfum árið 2020.

Í skýrslunni er borin saman þróun losunar frá samgöngum á landi og aksturs frá árunum 1990-2017. Frá árinu 2013 til 2017 fer akstur fram úr losun sem eflaust má skýra að hluta til með aukningu í blönduðum orku­gjöfum ökutækja og rafmagns­bílum.

Í skýrslunni segir að áherslur til að ná markmiðum um umhverfis­lega sjálf­bærar samgöngur verði aðgerðir og ívilnanir sem „miði að minni notkun jarðefna­eldsneytis og að samgöngu­tæki nýti orku sem framleidd er með endurnýjanlegum orku­gjöfum.“ Stuðningur við almennings­göngur og gerð göngu- og hjólreiða­stíga í þéttbýli er einnig hluti af þeim áherslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár