Hrollvekjurnar fá að vera í kjallaranum

Þótt bækur séu verk höfundar þá kemur margt fólk að útgáfu hverrar bókar. Sverrir Norland spjallar við ritstjóra, útgefendur, markaðs­fólk, rithöfunda og fleiri sem koma að útgáfu bóka í hlað­varpinu Bókahúsið.

Sverrir Norland stýrir nýju hlaðvarpi Forlagsins sem fjallar um bækur frá ýmsum hliðum.
Sverrir Norland stýrir nýju hlað­varpi For­lags­ins sem fjallar um bækur frá ýmsum hliðum. Mynd: Gassi

Bækur frá öllum hliðum eru í forgrunni í Bóka­húsinu, nýju hlaðvarpi Forlagsins sem Sverrir Norland rithöfundur stýrir. Sverrir leggur áherslu á að skoða bækur frá sjónar­hóli fleiri en aðeins höfund­anna sem skrifa þær:

„Þetta er óvenjulegt og frumlegt hlaðvarp í þeim skilningi að það er fjallað um bækur á öllum stigum,“ segir Sverrir. „Ég ræði við ritstjóra bóka, bóka­hönnuði, bóksala, markaðs­fólk, fólk á lager, þá sem búa til hljóð­bækur og svo framvegis. Ég fjalla því í raun um alla framkvæmdina að baki því að búa til bækur. Í dag er bók svo ekki bara prentuð bók heldur líka rafbók og hljóðbók svo að við pælum líka í því. En rithöfundarnir eru þó alltaf í forgrunni – enda aragrúi af skemmtilegum bókum að koma út þessa dagana.“

Nafngiftin Bókahúsið er ekki gripin úr lausu lofti en hlustendur ferðast ásamt Sverri og gestum um óendanlega stórt og ævintýralegt hús í þáttunum: „Já, hlustendur eru leiddir í gegnum hvern þátt á leik­glaðan og skemmtilegan hátt,“ segir Sverrir „Fyrst stíga þeir inn í anddyrið og fá kynningu á efni þáttarins, næst tylla þeir sér inn í betri stofuna og hlusta á viðtal við skáld­sagnahöfund, fara þaðan inn í blóðugu borð­stofuna þar sem þeir stíga yfir lík með hníf í bakinu og fyllast svolitlum óhugnaði; á eftir er kærkomið að fá sér ferskt loft úti á svölum og skyggnast kannski út í heim til að fræðast um nýjar þýðingar – og svo framvegis. Uppi á háalofti og í kjallaranum leynast svo köngulóar­vefir, gömul leyndarmál, kannski lík… svo að það er frjór staður til að taka höfunda hroll­vekja í viðtal.“

Komnir eru út fjórir þættir og fær Sverrir til sín góða gesti í hverjum þætti. Þeirra á meðal eru Halldór Guðmundsson, Fríða Ísberg, Ingólfur Eiríksson, Sigþrúður Gunnars­dóttir ritstjóri, Emilía Erla Ragnars­dóttir bóka­hönnuður, Einar Kárason, Rán Flygenring teiknari, Gunnar Helgason, Sigrún Páls­dóttir, Haukur Ingvarsson, Lilja Sigurðar­dóttir og Jónína Leós­dóttir. Einnig er mikið lagt upp úr hljóð­heimi hlað­varpsins. Frumsamin tónlist ómar í eyrum hlustenda en það er tvíeykið Urmull og kraðak sem á heiðurinn af henni.

Að sögn Sverris er áhersla lögð á að hafa andrúms­loftið í Bóka­húsinu afslappað og skemmtilegt.

„Gott bóka­hlaðvarp fjallar í raun um mannlífið á jörðinni eins og það leggur sig því að í bókum er fjallað um allt. Ég er gest­gjafinn í Bóka­húsinu býð viðmælendur og hlustendur velkomna til mín og svo ræðum við um allt milli himins og jarðar. Ef okkur finnst gaman að gera hlað­varpið finnst áhorf­endum skemmtilegt að hlusta á það – eða það vona ég.“

Bókahúsið er hægt að nálgast á vef Forlagsins og á helstu hlaðvarps­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár