Gæðin aukist mikið frá ári til árs - Hugmyndirnar framþróuðust og breyttust

„Gæðin eru að aukast frá ári til árs, og mikill metnaður einkenndi öll fyrir­tækin að þessu sinni,“ segir Einar Gunnar Guðmundsson, sem sér um nýsköpunarmál hjá Arion banka og hefur haldið utan um Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn, sem bankinn stendur fyrir í samstarfi við Klak Innovit. Hann hefur nú farið fram fjögur ár í röð, og lét Helga Valfells, framkvæmda­stjóri Nýsköpunar­sjóðs atvinnu­lífsins, hafa eftir sér í viðtali við Kjarnann að hraðallinn hefði haft verulega jákvæð áhrif hér á landi frá því hann fór fyrst fram árið 2012, og hjálpað til við að örva hugarflug frumkvöðla og nýsköpunar­fyrirtækja.

https://vimeo.com/138525857

Eftir fjörugar og vinnu­samar tíu vikur í sumar, kynntu teymin tíu fyrirtæki sín og viðskipta­hugmyndir fyrir fjár­festum á dögunum, og segir Einar Gunnar það hafa gengið hreint út sagt „stórkost­lega“. Mikill metnaður hafi einkennt fyrir­tækin sem kynnt voru, og það sem hafi einkennt næstum öll fyrir­tækin hafi verið mikil framþróun frá fyrstu stigum á þeim viðskipta­hugmyndum sem lagt var upp með í upphafi.

Verk­efn­in sem voru valin til þátt­töku í Startup Reykja­vík nú í sum­ar, og kynnt fyrir fjár­festum eftir ítarlega vinnu í sumar:


  • Wasa­bi Ice­land – Ætla að rækta hágæða wasa­bi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og end­ur­nýj­an­lega orku

  • Ludis – Þróa leikja­vettvang sem gerir leikja­hönnuðum kleift að hanna og notendum að spila leiki sem nota samskipti á milli sjónvarps og síma

  • Elsendia – Teng­ir sam­an ra­f­ræn skil­ríki og ra­f­ræna lyf­seðla. Fólk get­ur keypt lyf á net­inu með ör­ugg­um hætti og fengið sent heim

  • Vik­ing Cars – Markaðs­torg þar sem bíla­eigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.

  • Spor í sand­inn – Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu stað­bundinna matvæla og nýja upplifun í ferða­þjónustu fræðslu og afþreyingu

  • Genki instruments – Eru að þróa ný­stár­leg raf­tón­list­ar­hljóðfæri sem tengja má sam­an með áður óséðum hætti

  • Datadrive – Hug­búnaður sem tek­ur við upp­lýs­ing­um úr bíln­um þínum og teng­ir beint við snjallsím­ann

  • Delp­hi – Nýta þekk­ingu fjöld­ans til þess að spá fyr­ir um til­tekna viðburði í fram­tíðinni

  • Floori – Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossa­spurningar í gegnum vef og snjall­síma

  • Hún / Hann Brugg­hús – Örbrugghús með áherslu á frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi


Teymun­um tíu sem val­in voru til þátt­töku var lagt eft­ir­far­andi til:

  • Tvær millj­ón­ir í hluta­fé frá Ari­on banka gegn 6% hlut­deild í fyr­ir­tæk­inu

  • 10 vikna þjálf­un/​ráðgjöf frá men­tor­um víðs veg­ar að úr at­vinnu­líf­inu

  • Sam­eig­in­leg aðstaða allra viðskiptateym­anna

  • Tæki­færi til að kynna sig og verk­efni sín fyr­ir fjár­fest­um á loka­degi verk­efn­is­ins.


Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykja­vík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frum­kvöðla­starf­semi ýmis konar, í efn­is­tökum, og það sama má með segja um lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár