Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum hverju sinni. Samkvæmt fjöl­miðlinum eru þetta tíu mikil­vægustu hlutir dagsins í dag:


  1. Grikkir vilja fram­lengja lána­samninga um sex mánuði, eftir að hafa hafnað áfram­haldi á heildar­samkomulagi við ESB og AGS um endur­greiðslur lánanna.

  2. Stjórn­völd í Sýrlandi segjast reiðubúin til tíma­bundins vopnahlés í Aleppo, með því að hætta loft­árásum á borgina í sex vikur.

  3. Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti segir að úkraínskir hermenn eigi að gefast upp fyrir uppreisnar­hernum í landinu. Vopnahléð sem var samið um að tæki gildi á sunnudag hefur verið stans­laust brotið.

  4. Forseti Egypta­lands vill að alþjóða­herlið með stuðningi Sameinuðu þjóðanna verði sett saman til þess að berjast gegn Íslamska ríkinu. Þetta sagði hann eftir að hópur kristinna egypta var afhöfðaður á dögunum.

  5. Peter Oborne, helsti stjórnmála­spekingur Daily Telegraph, hefur sagt upp störfum vegna þess að hann segir blaðið hafa neitað að fjalla ítarlega um HSBC-gögnin, vegna þess að bankinn sé svo stór auglýsandi.

  6. Tony Abbot forsætis­ráðherra Ástralíu hefur beðið stjórn­völd í Indónesíu um að þyrma lífi tveggja ástralskra fanga sem voru dæmdir til dauða fyrir fíkniefna­smygl. Abbot biður stjórn­völd um að endur­gjalda Ástralíu stuðninginn eftir flóð­bylgjuna árið 2004 með þessum hætti.

  7. Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur lofað að áfrýja ákvörðun dómara sem hafnaði innflytjenda­stefnu hans.

  8. Gary Shilling hagfræðingur telur að olíuverð geti enn lækkað um 10 til 20 dollara á tunnu.

  9. Eitt stærsta flutninga­fyrirtæki heimsins gæti orðið til ef fimm milljarða dollara tilboði fyrir­tækisins Japan Post í félagið Australia´s Toll verður tekið.

  10. Snapchat leitar nú fjár­mögnunar fyrir 500 milljónir dala, verðmatið á fyrir­tækinu er 19 milljarðar Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár