Píratar vilja að Menntasjóður fái heimild til að fella niður námslánaskuldir

Mennta­sjóður námsmanna færði sex milljarða króna á afskriftar­reikning í fyrra eftir laga­breytingu, en var undir milljarði króna árið áður. Meðal­upphæð afborgana hækkaði um 46 þúsund krónur árið 2021 og var 266 þúsund krónur.

Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður tillögunar.
Björn Leví Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram þings­ályktunar­tillögu þess efnis að Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, leggi fram frumvarp sem veiti Mennta­sjóði námsmanna heimild til niður­fellingar á námslánum, að hluta til eða öllu leyti, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Skilyrðin eiga að vera almenn eins og að umbreyta hluta af eldri lánum í námsstyrk, vegna efnahags­ástands eða sértæk vegna alvarlegra og varanlegra veikinga lántaka. Píratar vilja að ráðherrann leggi fram frumvarp um málið á vorþingi 2023.

Fjárfesting sem sé ekki ólík styrkjum til nýsköpunar

Í greinar­gerð sem fylgir tillöguna segir að námslán og náms­styrkur sé fjár­festing hins opinbera í menntun lands­manna. „Sú fjár­festing er ekki ólík styrkjum til nýsköpunar. Það er ekki óalgengt að nýsköpunar­verkefni heppnist ekki sem skyldi, en það kemur ekki í veg fyrir áfram­haldandi styrki til nýsköpunar, því á heildina litið er sú fjár­festing arðbær. Sama gildir um náms­styrki.“

Með nýjum lögum um Mennta­sjóð námsmanna bættist við heimild til þess að umbreyta hluta af námsláni í námsstyrk að uppfylltum ákveðnum skilyrðum að námi loknu. Tillaga þing­flokks Pírata snýr að því að allir lántakar, óháð því hvenær þeir tóku námslán, fái möguleika á sambærilegri niður­fellingu námsláns vegna almennra eða sértækra ástæðna. „Stundum gerast óvæntir atburðir sem leiða til erfið­leika við að standa skil á greiðslu námslána eða breyta forsendum þess að hægt sé að hagnýta námið. Það væri eðlilegt að í slíkum kringum­stæðum væri til laga­heimild til þess að fella niður lán að hluta eða að öllu leyti.“

Framlag í afskriftarsjóð jókst um rúma fimm milljarða í fyrra

Á árinu 2020 voru sett ný lög um námslán og tóku þau gildi 1. júli 2020. Árið 2021 var því fyrsta heila árið þar sem nýju lögin eru í gildi.

Í nýju lögunum eru lánþegum gefnir ýmsir valkostir um hvernig þeir geti hagað endur­greiðslum námslána sinna. Í grófum dráttum snerist breytingin um það að námsmenn sem ljúka námi á réttum tíma geta fengið hluta sinna námslána niður­felld eftir að námi lýkur, eða 30 prósent þeirra. Auk þess var það einnig að finna ýmis ákvæði sem hafa áhrif á eldri námslán, svo sem niður­felling ábyrgðar­manna, aflsátt vegna auka innborgana inn á námslán, hækkun á uppgreiðsluafslætti, lækkun vaxta og árlegra endur­greiðslna.

í ársreikningi Mennta­sjóðs námsmanna vegna ársins 2021 kemur fram að ýmis áhrif nýju laganna séu enn ekki komin fram og því hafi ekki verið góðar forsendur til að byggja á við mat á afskriftar­reikningi síðasta árs. Verulega óvissa væri þar til staðar sem gerði það að verkum að smíða þurfti nýtt reikni­líkan.

Framlag í afskriftar­sjóð vegna síðasta árs var 6.049 milljónir króna. Það er margfalt það framlag sem var í sjóðinn árið áður, þegar það nam 938 milljónum króna.

Meðal­upphæð afborgana námslána var 266 þúsund krónur á síðasta ári. Hún hækkaði um 46 þúsund krónur á árinu 2021, eða um 21 prósent. Meðal­upphæðin hafði lækkað milli áranna 2019 og 2020 um 24 þúsund krónur en hafði verið nokkuð stöðug árin þar á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár