Eins og hænsn í myrkri

Í dönsku tíma­riti um varnar- og örygg­is­mál birt­ist fyrir skömmu grein ásamt við­tali við Henrik Lyhne, liðs­for­ingja í danska hernum. Þar líkir hann hernum við hænsn, sem eru varn­ar­laus í myrkri. Herinn skorti allan búnað til næt­ur­hern­aðar, fyrir utan allt annað, þrátt fyrir fögur lof­orð stjórn­mála­manna.

Danski herinn
Danski her­inn Liðs­for­ingi í danska hernum gagn­rýnir skort­inn sem her­inn býr við. „Herinn getur ekki stundað næt­ur­hernað því til þess skortir okkur nauð­syn­legan búnað, við höfum enga næt­ur­sjónauka og erum því eins og hænsn í myrkri, sjáum ekki neitt,“ segir Henrik Lyhne. Mynd: AFP
Hlustaðu 08:48 · Eitt og annað

Henrik Lyhne er sex­tugur liðs­for­ingi í danska hernum þar sem hann er flestum hnútum kunn­ugur eftir rúm­lega 40 ára her­mennsku. Hann hefur á und­an­förnum árum skrifað fjöl­margar greinar þar sem hann hefur fjallað um danska her­inn. Danskir fjöl­miðlar hafa sömu­leiðis margoft birt við hann við­töl um her­inn og ástandið þar, sem Henrik Lyhne segir miður gott. Skýr­ing­arnar eru sífelldur nið­ur­skurður, ásamt óstjórn.

Liðs­for­ingiHenrik Lyhne er óhræddur við að greina frá því sem danska her­inn skortir.

Það er sjaldn­ast fallið til vin­sælda að gagn­rýna og endar iðu­lega með að fyr­ir­tækið eða stofn­unin losar sig við þann sem gagn­rýnir. Henrik Lyhne er bæði þekktur og virtur og kannski er það ástæða þess að hann hefur ekki fengið „reisupass­ann“. Það segja að minnsta kosti sumir danskir fjöl­miðlar.

Getum ekki barist í myrkri, erum þá blindir eins og hænur

Í danska vef­miðl­inum OLFI, sem fjallar um öryggis- og varn­ar­mál, birt­ist fyrir hálfum mán­uði löng grein ásamt við­tali  við Henrik Lyhne undir yfir­skrift­inni „Hæren mangler nat­kampud­styr – kan ikke kæmpe i mørke  vi er blinde som høns“. Í upp­hafi grein­ar­innar í OLFI er rifjað upp að í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu í febr­úar 2022, hafi ekki skort fögur fyr­ir­heit. Tveimur vikum eftir inn­rás­ina náðu fimm flokkar (meiri­hluti) á danska þing­inu, Fol­ket­inget, sam­komu­lagi um stefnu Dan­merkur í örygg­is­málum. Kjarni þessa sam­komu­lags var að nú, seint og um síðir, myndi Danmörk standa við mark­mið Nato um að verja tveimur pró­sentum af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til her­mála. Þetta átti þó ekki að ger­ast „í einum grænum“ heldur í áföngum fram til árs­ins 2033. Sam­komu­lagið á þing­inu gerði enn fremur ráð fyrir sjö millj­arða auka­fram­lagi, hér og nú, eins og það var orðað, til að styrkja her­inn og fylla á vopna­búrið.

Innan fárra mán­aða var auka­fram­lagið uppurið, hluti þess fór til Úkraínu, hluti fram­lags­ins fór í að senda her­sveit til Lett­lands og enn fremur í kostnað vegna frei­gátu sem send var til eft­ir­lits á Eystra­salti. Samtímis ákváðu stjórn­mála­menn­irnir að senda margs konar vopna­búnað til Úkraínu, far­ar­tæki, vara­hluti, skot­færi og fleira og í stað­inn yrði pantað nýtt fyrir her­inn. Allt þetta skortir danska her­inn í dag því í stað þess sem sent var til Úkraínu kom ekk­ert, það var aldrei pantað. 

Meiri peningar – seinna

Eftir þing­kosn­ingar og stjórn­ar­myndun í des­em­ber 2022 til­kynnti rík­is­stjórn Mette Frederik­sen að mark­mið­inu um tvö pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til her­mála skyldi náð 2030. Á síð­asta ári gekk danska þingið frá nýju sam­komu­lagi varð­andi öryggis- og varn­ar­mál, þar var gert ráð fyrir að fram­lög til mála­flokks­ins yrðu aukin um 155 millj­arða danskra króna (3.100 millj­arðar íslenskir), umfram fyrri áætl­anir, á næstu 10 árum. Þótt for­svars­menn hers­ins fagni því að fá fleiri krónur í kass­ann eru þeir ekki jafná­nægðir með að þessum fjár­munum skuli dreift á mörg ár og bið verði á fyrstu „úthlutun“. Í því ástandi sem nú ríki sé brýnt að bregð­ast skjótt við.

Ekki eitt heldur allt

Í áður­nefndu við­tali við OLFI nefndi Henrik Lyhne margt af því sem her­inn skortir og það er löng upp­taln­ing. „Okkur vantar vopn af ýmsu tagi, sér­stak­lega léttar vél­byssur, við höfum sent öll felu­net sem við eigum til Úkraínu og óvíst hvenær við fáum ný í stað­inn. Við eigum að senda her­deild til Lett­lands síðar á árinu. Ég á að athuga hvort her­menn­irnir kunni að nota felu­net áður en þeir fara en ég get ekki kannað það ef þau eru ekki til. Enn verra er þó að her­inn getur ekki stundað næt­ur­hernað því til þess skortir okkur nauð­syn­legan búnað, við höfum enga næt­ur­sjónauka og erum því eins og hænsn í myrkri, sjáum ekki neitt. Svo er allt í ólagi með fjar­skiptin, okkur sár­vantar tal­stöðvar, við höfum neyðst til að not­ast við fjar­skipta­tæki sem við höfum fengið að láni hjá lög­regl­unni og heima­varn­ar­lið­inu. Þau tæki eru öðru­vísi en tæki hers­ins og ef við fáum réttu tækin, sem von­andi ger­ist, kunna her­menn­irnir ekk­ert á þau. Svo er skortur á nauð­syn­legum fatn­aði og líka vantar hjálma. Ég gæti nefnt margt fleira,“ sagði Henrik Lyhne.

„Við höfum enga næt­ur­sjónauka og erum því eins og hænsn í myrkri, sjáum ekki neitt.“

Mega ekki nota pallbílana til að flytja hermenn 

Samkvæmt reglum sem inn­kaupa- og birgða­stjórn hers­ins, sem fer með örygg­is­mál, er ekki lengur heim­ilt að flytja her­menn á vöru­bíl­spöllum með bekkjum og segli yfir, eins og gert hefur verið um ára­tuga­skeið og flest önnur lönd gera. Henrik Lyhne segir að í stað pall­bíl­anna not­ist her­inn við smárútur sem eru leigðar frá Mercedes Benz og Volkswagen (svo­nefnd rúg­brauð). „Þetta eru mal­biks­bílar og engan veg­inn heppi­legir fyrir her­inn því þeir fest­ast um leið og farið er út af mal­bik­inu. Ef svo mikið sem smá­beygla kemur á þessa bíla verðum við að senda þá á verk­stæði hjá eig­and­anum. Hér áður fyrr not­uðum við bara hamar og pens­il­stroku af máln­ingu ef beygla kom á gömlu Unimog-bíl­ana. Sums staðar þurfa her­menn jafn­vel að not­ast við almenn­ings­vagna og sitja þá innan um aðra far­þega. Ef her­menn ferð­ast með þessum stræt­is­vögnum þurfa þeir að nota gúmmí­skó­hlífar og plast­á­breiður yfir sætin svo þeir svíni ekki allt út.“

Bílaflotinn úreltur og fær iðulega ekki skoðun

Á und­an­förnum árum hefur mikið verið fjallað um tækja­kost danska hers­ins sem er að stórum hluta kom­inn mjög til ára sinna. Herinn má ekki nota bíla sem ekki kom­ast í gegnum árlega skoðun og vegna erf­ið­leika við að fá vara­hluti, og fjár­skorts, stendur stór hluti bíla­flot­ans og grotnar niður.

Anders Krojgaard LundFyrr­ver­andi yfir­maður í dönsku her­deild­inni í Suður-Slésvík.

Í nýj­ustu umfjöllun OLFI tíma­rits­ins er við­tal við Anders Krojgaard Lund, fyrr­ver­andi yfir­mann í dönsku her­deild­inni í Suður-Slésvík, með aðsetur í Haders­lev á Suður-Jótlandi. Hann segir að her­deildin, sem meðal ann­ars þjálfar nýliða, þurfi að fara með öku­tæki sín í skoð­un­ar­stöð­ina í Skrydstrup þar sem danski flug­her­inn hefur aðsetur. Flug­floti hers­ins hefur for­gang í skoð­un­ar­stöð­inni og vegna nið­ur­skurðar þar, eins og ann­ars staðar í hernum, sé und­ir­mannað. Þetta þýði að öku­tækin frá her­deild­inni í Suður-Slésvík þurfi iðu­lega að bíða tímunum saman eftir skoðun. Ef bíll­inn stenst ekki skoðun getur hann fengið und­an­þágu til að fara til baka til her­deild­ar­innar en verður síðan að bíða við­gerðar, sú bið getur tekið langan tíma, ef hún á annað borð fer fram.

Ekki ástæða til bjartsýni

Henrik Lyhne segir ekki ástæðu til bjart­sýni varð­andi her­inn þótt fjár­veit­ingar til hans eigi að aukast, seinna. Herinn er und­ir­mann­aður og þegar alls staðar vantar allt til alls er það ekki til þess fallið að laða ungt fólk að. Fyrir utan það sem nefnt hefur verið hér að framan er húsa­kostur hers­ins í mik­illi nið­ur­níðslu, vegna margra ára við­halds­leysis. Nýlega kom fram að tvö af her­skipum flot­ans hafa árum saman ein­göngu getað skotið púð­ur­skotum vegna þess að stýri­bún­aður fyrir fall­byss­urnar hefur aldrei verið settur í þau, vegna sparn­aðar. Um síð­ast­liðna helgi greindi dag­blaðið Politi­ken frá að tvö her­skip liggi nú við bryggju í Nuuk á Græn­landi vegna bil­ana.

Henrik Lyhne segir að ástandið í hernum sé ótrú­legt. „Ég og fleiri höfum árum saman bent á ástandið en það virð­ist ekki breyta neinu. Það er eins og við hér í Danmörku lifum í ver­öld sem lýst er í barna­bókum Morten Korch sem var vin­sæll á fyrri hluta síð­ustu aldar. Þar er sumar, sólin skín á strá­þök lit­skrúð­ugra bind­ings­verks­hús­anna og aðal­per­sóna bók­ar­innar hjólar blí­strandi niður mjóa göt­una í þorp­inu. Veru­leik­inn er annar í dag,“ klykkti Henrik Lyhne út með.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

8 mín.
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hefur árum saman mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mann­skap. Slæmur aðbún­aður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækj­ast eftir her­mennsk­unni. Nýlega varð danski flot­inn að aflýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flot­ans og geta verið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár