Norðurál segir fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar „út í hött"

Norðurál vísar á bug ásökunum Harðar Arnar­sonar, forstjóra Lands­virkjunar, í garð stjórn­enda fyrir­tækisins um að nær öll gagnrýni sem beinist að Lands­virkjun í opinberri umræðu sé á ábyrgð Norðuráls. Þá hafnar fyrir­tækið því að það stýri Verkalýðs­félagi Akraness. Í tilkynningu frá því segir að allir sjái að þessar full­yrðingar séu „út í hött".

„Viðræður um samnings­bundna fram­lengingu orku­samnings milli fyrir­tækjanna hafa farið fram af kurteisi og virðingu og góður gangur verið í þeim nýlega. Það er því óvænt og mikil vonbrigði að Lands­virkjun skuli koma fram með þessum hætti eftir nærri 20 ára farsælt samstarf fyrir­tækjanna. Norðurál mun áfram vinna af heilindum að samkomu­lagi við Lands­virkjun og vonar að Lands­virkjun geri hið sama," segir í tilkynningunni.

Auðlindinar okkar, þrýsti­hópur sem Hörður tjáði sig einnig um í gær, sendi líka frá sér tilkynningu í morgun. Þar er aðdrottnunum Harðar vísað á bug, „Auðlindir okkar er áhugamanna­félag um ábyrga nýtingu auðlinda Íslands. Markmiðið er að vekja spurningar um verndun, nýtingu og arðsemi íslenskra auðlinda. Herði Arnarsyni finnst greini­lega sumar þessar spurningar mjög óþægilegar. Lands­virkjun er í eigu þjóðarinnar og okkur, eins og öðrum lands­mönnum, kemur einfald­lega við, hvernig fyrir­tækið fer með orku­auðlindir Íslands. Við teljum varhuga­vert að Lands­virkjun komist upp með það gagnrýnis­laust að blekkja landsmenn, annars vegar með tálsýn um orkusölu í gegnum raforku­sæstreng til Bretlands, og hins vegar með full­yrðingum um að það orkuverð, sem fyrir­tækið býður, sé samkeppnis­hæft á alþjóð­legum mörkuðum, þegar tölulegar stað­reyndir sanna að svo er alls ekki. Það er grafal­varlegt ef Lands­virkjun stefnir atvinnu fjölda fólks og þjóðarhag í voða með því að verð­leggja viðskipta­vini sína út af markaðnum."

Undir tilkynninguna skrifar Þorvarður Goði Valdimarsson.

Landsvirkjun sló til baka

Hörður gagnrýndi Norðurál harðlega í fjöl­miðlum í gær, líkt og fjallað var um í frétta­skýringu á Kjarnanum. Á blaðamanna­fundi í gær sagði Hörður m.a. að umræða um raforku­samning Lands­virkjunar og Rio Tinto-Alcan hafa verið dregna inn í þá kjara­deilu sem þar stendur yfir af öðrum en deilu­aðilum. Aðspurður um hverjir það væri sagði Hörður: „Stjórn­endur Norðuráls, þeir telja að þetta styðji þeirra málstað. Þegar þú ert að semja um tugmilljarða hagsmuni þá beita aðilar öllum aðferðum til þess að styrkja sinn málstað. Það er ekkert óeðlilegt. Hvort þeir séu að ganga lengra núna en áður verða kannski aðrir að meta, en ég tel þessa tengingu mjög óheppilega og mér finnst hún mjög ósann­gjörn gagnvart Rio Tinto.“

Aðspurður um hvað það væru sem stjórn­endur Norðuráls væri að gera sagði Hörður það vera ljóst, og fullkomlega eðlilegt, að þeir færu víða í samfélaginu til að koma sjónar­miðum sínum á framfæri. Auk þess sagði Hörður: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki tengst orku­umræðu inn í umræðuna. Þeir hafa verið kynntir í viðtölum sem ráðgjafar Norðuráls.“

Viðar Garðarsson.
Viðar Garð­ars­son.

Viðar Garðarsson.

Þessi hópur sem Hörður talar um er leiddur af manni sem heitir Viðar Garðarsson, viðskipta­fræðingi og markaðs­ráðgjafa, sem blandað hefur sér af miklu afli í umræður um orkumál að undan­förnu. Viðar er á meðal þeirra sem heldur úti vettvangnum „Auðlindirnar okkar“ á Facebook, nýstofnaðavefmiðlinum Veggnum og skrifar pistla á vef mbl.is. Í skrifum Viðars og annarra á þessum síðum er talað fyrir lægra orkuverði til stóriðju, lengri orku­sölu­samningum og gegn lagningu sæstrengs til Bretlands. Þá var Viðar til viðtals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun desember. Í kynningu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norðurál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álverinu í Straumsvík hafi verið sett fram vegna þungs reksturs, sem megi rekja til of hás orkuverðs.

Hörður sagði þennan hóp og skrif þeirra ekki trufla Lands­virkjun mikið og að samnings­viðræður við Norðurál stæðu yfir þrátt þessa stöðu. Þær væru alls ekki í uppnámi. „En það er tekist á.“

Jafnvel þótt að ekki myndi semjast við Norðurál um áfram­haldandi kaup á orku væri engin skortur á öðrum áhuga­sömum kaupendum. Það væri mikill áhugi frá aðilum í kísil­iðnaði, sem reka gagnaver og öðrum blönduðum iðnaði fyrir því að kaupa orku frá Lands­virkjun auk þess sem heild­sölu­markaður væri alltaf að vaxa. Því væri meiri eftir­spurn en framboð.

Þá tjáði Hörður sig einnig um skrif Vilhjálms Birgis­sonar, formanns Verkalýðs­félags Akraness, sem hefur gagnrýnt Lands­virkjun harðlega undan­farið. Hann sagðist hugsi yfir skrifum Vilhjálms og hvaðan þær upplýsingar sem hann leggi út frá komi. „Ég hef ekki trú á að þær upplýsingar komi frá honum sjálfum. Ég tel að þessar upplýsingar sem Vilhjálmur Birgisson vitnar til komi frá fyrir­tækinu [Norðuráli]. Þær upplýsingar eru í sumum tilvikum rangar og í öðrum tilfellum mjög villandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár