Segir Íslending taka upp myndbönd ISIS-samtakanna

Sýrlend­ingur, sem hefur flúið úr röðum ISIS-samtak­anna, segir að íslenskur kvikmynda­gerðarmaður hafi gengið til liðs við samtökin og það útskýri fagmannlega unnin myndbönd sem notuð séu til að laða að nýja meðlimi og áhorf­endur í Vestrænum ríkjum. Á meðal þeirra myndbanda sem ISIS-hefur dreift eru myndbönd af afhöfðunum vestrænna manna sem þau hafa verið með í haldi.

Frá þessu er greint í blogg­færslu sem birtist í gær á heimasíðu New York Review of Books. Grapevine greindi frá tilurð blogg­færslunnar í morgun.

ISIS-samtökin, sem ganga líka undir nafninu Íslamska Ríkið, hafa náð á sitt vald stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berjast hatram­lega gegn þarlendum stjórn­völdum.

Í bloggfærslurnni, sem Sarah Birke, frétta­ritari The Economist í Miðausturlöndum og Norður-Afríku, skrifar, en hún býr í Damascus í Sýrlandi, kemur fram að Abu Hamza, sem hafði flúið úr röðum ISIS, hafi sagt henni að íslenskur kvikmynda­gerðarmaður væri á meðal þeirra sem gengið hefðu til liðs við samtökun og að það væri ástæðan fyrir því að myndbönd þeirra væru jafn fagmannlega gerð og raun ber vitni.

ISIS skráði lén á Íslandi


Í októ­ber síð­ast­liðnum var greint frá því að ISIS hefði skráð lén með .is end­ingum. Um var að ræða Khilafah.is, frétta­síðu sam­tak­anna. ISNIC, sem fer með léna­skrán­ingu .is léna, lok­aði lénum sem ISIS not­að­ist við þann 12. októ­ber á grund­velli reglna fyr­ir­tæk­is­ins um léna­skrán­ingu, þar sem fram kemur að rétt­hafa léns beri að ábyrgj­ast að notkun léns sé í sam­ræmi við íslensk lög.

Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ISNIC hefur lokað léni vegna innihalds hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár