Þróa armband sem eykur öryggi sjómanna

Innan háskóla­samfélagsins er mikil gróska á sviði nýsköpunar og frumkvöðla­starfs. Í Háskólanum í Reykjavík (HR) er mikið lagt upp úr samvinnu milli nemenda í ólíkum greinum og hefur einn áfanganna það að markmiði að vinna að stofnun fyrir­tækisins, búa til viðskipta­áætlun og hrinda hlutum í framkvæmd.

Hópur skipaður sex nemendum, Halldóri Guðna Trausta­syni nemanda í hátækni­verkfærði, Hauki Sigur­geirssyni nemanda í viðskipta­fræði, Hákoni Garðari Þorvalds­syni nemanda í hátækni­verkfræði, Röskvu Vigfúsdóttur nemanda í sálfræði, Svanhildi Kamillu Sigurðar­dóttur nemanda í lögfræði, og Mikael Ingasyni, nemanda í viðskipta­fræði, hefur unnið að stofnun fyrir­tækis í kringum hugmynd sem fæddist í þriggja vikna áfanga í HR. Fyrir­tækið heitir Navitech og snýr að því að þróa armband fyrir sjómenn til þess að tryggja betur öryggi þeirra.

Armbandið virkar þannig að ef að sjómaður fellur fyrir borð þá gera neyðarboð frá armbandinu skip­stjóra og björgunar­aðilum í landi viðvart. Viðeigandi björgunar­áætlanir geta þá farið strax í gang og mögulegt að sjá stað­setningu þess sem er með armbandið með GPS tækni.

Hugmyndin hefur þegar vakið athygli útgerðar­fyrirtækja hér á landi og er það ætlun hópsins sem stendur að baki fyrir­tækinu að mark­aðsetja armbandið á alþjóða­vettvangi í fram­tíðinni en í fyrstu stendur til að þróa hugbúnaðinn og tæknina sem armbandið byggir á í samstarfi við viðskipta­vini hér á landi.

Nánari upplýsingar um Navitech má sjá á vefsíðu fyrir­tækisins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár