Pólitísk ábyrgð dómsmálaráðherra virðist engin vera

Pró­fessor í lög­fræði segir að afleið­ingar af því að ráð­herra sé dæmdur fyrir að brjóta lög við skipun dóm­ara séu ríkið greiði skaða­bætur. Pólitísk ábyrgð ráð­herr­ans sem brýtur lögin virð­ist ekki vera nein. Hún ótt­ast um sjálf­stæði dóm­stóla.

Björg Thoraren­sen, pró­fessor í lög­fræði við Háskóla Íslands, segir að það hafi ítrekað gerst á síð­ustu árum að ráð­herra sé dæmdur fyrir að brjóta lög við skipun dóm­ara. Afleið­ingar af því hafi ein­vörð­ungu verið þær að íslenska ríkið sé dæmt skaða­bóta­skylt. „Pólitísk ábyrgð ráð­herra er engin á því.“ Þetta kom fram í við­tali við Björgu í fréttum RÚV.

Þar sagði hún enn fremur að ráð­herra beri ábyrgð á öllum emb­ætt­is­at­höfnum öllum sam­kvæmt 14. grein stjórn­ar­skrár­innar og verði sóttur fyrir Lands­dómi fyrir emb­ætt­is­brot. „En eins og menn vita þá er það ein­göngu í alvar­leg­ustu til­vikum sem slíkt myndi ger­ast að emb­ætt­is­brot sé svo alvar­legt.“

Björg segir að rökin með því að ráð­herra hafi end­an­legt skip­un­ar­vald dóm­ara og sé því ekki end­an­lega bund­inn af til­lögum dóm­nefnda sem leggja til skipan dóm­ara séu þau að ráð­herr­ann beri ábyrgð­ina. „En í raun­inni virð­ist sem í alla­vega fram­kvæmd­inni birt­ist engin slík ábyrgð. Hann tekur í raun enga ábyrgð á því að hafa verið dæmdur brot­legur.“

Að hennar mati dregur sú þróun sem átt hefur sér stað að und­an­förnu gefi til­efni til að hafa áhyggjur af því að sjálf­stæði dóms­valds og dóm­stóla sé ekki eins og það eigi að vera.

Sér­stak­lega ef það virð­ist ætla að verða fastur liður að Alþingi sam­þykki frá­vik ráð­herra frá til­lögum dóm­nefndar. Þegar lögum var breytt árið 2010, og dóm­nefnd gert að meta hæfi umsækj­enda með þeim hætti sem gert er í dag, þá hafi það m.a. verið gert að danskri fyr­ir­mynd. Þar hefur ráð­herra aldrei vikið frá til­lögum dóm­nefndar. Hér virð­ist frekar verið að und­ir­búa að gera það frekar að reglu að Alþingi sam­þykki, og hafi end­an­legt ákvörð­un­ar­vald um að skipa dóm­ara umfram það sem lagt sé til af hæfn­is­nefnd. „Það finnst mér þróun sem er ástæða til að hafa áhyggjur af.“

Ráðherra braut lög

19. des­em­ber 2017 komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga við skipan Lands­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­stóll­inn tók afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætlar að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum.

Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sigríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþingis, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröfum.

Sigríður hefur aftekið það með öllu að segja af sér vegna máls­ins og nýtur stuðn­ings for­ystu­manna rík­is­stjórn­ar­innar til þess að sitja áfram.

Tveir vilja bætur

Tveir þeirra sem dóm­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu stefndu rík­inu í ofan­greindu máli. Þeir eru Jóhannes Rúnar Jóhanns­son og Ástráður Har­alds­son. Hinir tveir sem urðu af emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara vegna ákvörð­unar Sigríðar hafa gert kröfu á ríkið um greiðslu bóta vegna þessa. Annar þeirra, Jón Hösk­ulds­son, und­ir­býr nú lög­sókn á hendur rík­inu til að fá slíkar greiddar. Hinn, Eiríkur Jónsson, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fari sömu leið. Á mbl.is í dag er haft eftir lög­manni hans, Grími Sig­urðs­syni, að það sé algjör­lega ein­boðið að þeirra mati að bóta­skylda sé til staðar í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár