Baráttan snýst nú um að fá fólk til að kjósa

Donald Trump og Hillary Clinton eyða loka­sprettinum í kosninga­baráttunni í að fá fólk til að kjósa. Mikil spenna ríkir en kosið verður 8. nóvember.

Fram­bjóðandi Demókrata, Hillary Clinton, og fram­bjóðandi Repúblikana, Donald J. Trump, eyða loka­sprettinum í kosninga­baráttunni í að fá fólk til þess að mæta á kjörstað. Búist er að við því að kosninga­þátttaka geti ráðið úrslitum um það hvor muni sigra í kosningunum, en Trump hefur sótt verulega í sig veðrið að undan­förnu, í könnunum, eftir að hafa verið töluvert á eftir Hillary.

Hillary hefur komið fram á fjölda útifunda þar sem tónlistar­fólk hefur stutt hana, meðal annars söngkonan Beyoncé og maður hennar, rapparinn Jay Z.

Trump var í New Hampshire í gær, þar sem hann ræddi meðal annars um innflytjendamál. Hann sagði Hillary vera með „vonlausa áætlun“ og að hún myndi búa til margar kynslóðir af hryðju­verkamönnum. „Hún vill fjölga flótta­mönnum frá Sýrlandi um 550 prósent,“ sagði Trump og ítrekaði að þetta myndi „smita“ samfélögin með hryðjuverkaógn.

Hillary hefur fyrst og síðast talað fyrir því, að fólki mæti á kjörstað og kjósi. Hún sagðist í fundi í Ohio, ekki geta hugsað til þess hvernig fólkið muni taka því að vera með forseta eins og Trump. „Við getum ekki látið það gerast og ég óska eftir stuðningi ykkar,“ sagði Hillary.

Vefurinn FiveThirtyEight, sem reiknar út stöðuna í Banda­ríkjunum með því að taka saman gögn úr könnunum víða að, segir Hillary nú vera með 48,5 prósent fylgi en Trump 45,7. Sigur­líkurnar eru þó meiri hjá Hillary, eða 64,3 prósent eins og mál standa nú, þegar þrír dagar eru til kosninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár