Pútín: Allt að sjö þúsund hryðjuverkamenn frá gömlum Sóvétríkjum með Íslamska ríkinu

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, segir að allt að sjö þusund hryðju­verkmenn, sem eigi rætur í ríkjum sem tilheyrðu Sovét­ríkjunum fyrir fall þeirra, vera að berjast með Íslamska ríkinu í Sýrlandi. Þetta kom í ræðu Pútíns í fundi í Kasakstan, að því er segir í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC. Hann gagnrýndi enn fremur Bandaríkja­menn fyrir að forðast viðræður um lausn á stöðu mála í Sýrlandi.

Pútín sagði enn fremur að hann hefði miklar áhyggjur af því að ótryggt ástand í Afganistan, þar sem Íslamska ríkinu hefur vaxið ásmegin, gæti haft smitandi áhrif til Mið-Asíuríkja. Þá þyrftu þjóðir heims að taka höndum saman, til þess að vinna gegn Íslamska ríkinu og uppgangi hryðjuverka­hópa.


BREAKING Putin: I don't get how US can criticize Russian op in Syria if it refuses dialogue http://t.co/MEZEKADQiG pic.twitter.com/yNbdZCIzGT


— RT (@RT_com) October 15, 2015

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, greindi formlega frá því í vikunni að ákveðið hefði verið að halda 5.500 hermönnum áfram í Afganistan. Til stóð að draga allan herinn úr landinu, áður en kjör­tímabili Obama myndi ljúka, en af því verður ekki. Vaxandi átök og óöryggi í landinu er ástæða þess að bandarísk stjórn­völd meta stöðuna með þessum hætti.

Rússar hafa haldið uppteknum hætti í Sýrlandi og barist við hlið stjórnar­hers Bashar al-Assad forseta Sýrlands gegnum uppreisnar­hópum í landinu og Íslamska ríkinu. Þetta er gert í óþökk Banda­ríkjanna og flestra Vestur­landa, meðal annars Frakk­lands og Bretlands, sem segja ótækt að starfa með Assad. Hann geti aldrei orðið hluti af pólitískri lausn í Sýrlandi.

Um tíu milljónir manna eru nú á vergangi í Sýrlandi, af um 22 milljóna heildar­íbúafjölda, og saman­lagður földi flótta­manna þegar Afganistan og Írak er meðtalið, er um 20 til 25 milljónir manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár