Sjónvarpsstöðin SkjárEinn heitir frá og með deginum í dag Sjónvarp Símans. Ár er síðan að SkjárEinn rann inn í Símann og dagskrá stöðvarinnar var opnuð öllum landsmönnum í október í fyrra.Þá stofnaði Síminn streymisveitu í áskrift sem hefur nú fleiri áskrifendur en voru að sjónvarpsstöðinni við breytinguna.
Alls 18.500 heimili eru nú í áskrift og met var slegið innan efnisveitunnar í maí þegar spilanir voru 600 þúsund talsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.
Nafnabreytingarnar ná yfir allar sjónvarpsstöðvar og streymisveitur Símans sem áður voru kenndar við Skjáinn. SíminnBíó, SíminnKrakkar og SíminnHeimur eru því ný nöfn í safni Símans.
Í tilkynningunni er haft eftir Orra Haukssyni, forstjóra Símans, að nýtt nafn endurspegli umbyltinguna sem orðið hafi á bæði stöðinni sjálfri og Símanum sjálfum síðustu mánuði. „Við viljum leggja áherslu á vörumerkið og sýn okkar um að verða leiðandi í afþreyingu, fjarskiptum og upplýsingatækni. Við kennum því stöðina við fyrirtækið.

Síminn hefur lagt vaxandi áherslu á afþreyingu og efni, sem sést meðal annars á samningnum um EM2016. Þar verða allir leikir íslenska landsliðsins og meira til sýndir á nýnefndu stöðinni og mótið í heild sinni í áskrift á Símanum Sport. Þá býr félagið að efni frá helstu sjónvarpsþáttaframleiðendum heims; 20th Century Fox, Disney, CBS Television og Showtime ásamt fleirum. Vetrardagskráin verður enn veglegri en í ár og þessa dagana leggjum við lokahönd á innlendu dagskrána.“
SkjárEinn fór í loftið árið 1999 og var í opinni dagskrá allt til ársins 2009, eða í tíu ár. Frá þeim tíma og fram til október 2015 var stöðin, og tengdar stöðvar Skjásins, áskriftarstöðvar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir