„Ef maðurinn er ekki múslimi, þá hlýtur hann nú að vera geðsjúkur. Ráðgátan leyst?“

Ingólfur Sigurðsson knattspyrnu­maður telur að með því að beina sífellt sjónum að geðheilsu þeirra sem fremja voðaverk sé alið á fordómum gagnvart geðsjúkum. „Þung­lyndur maður tortímir ekki sjálfum sér ásamt full­setinni flugvél vegna þess að þung­lyndið gerði honum það. Ekki frekar en það skipti máli hverrar trúar hann er,“ skrifar hann.

Ingólfur Sigurðsson knattspyrnu­maður vakti mikla athygli þegar hann steig fram árið 2014 og lýsti því hvernig er að lifa með kvíða­röskun. Undan­farin ár hefur hann skrifað pistla og flutt fyrir­lestra um andleg veikindi íþrótta­fólks og opnað þannig umræðuna um mál sem áður lágu í þagnar­gildi. 

Í dag veltir hann því fyrir sér á Facebook-síðu sinni hvers vegna það er jafn algengt og raun ber vitni að þeir sem fremja ódæðis­verk séu stimplaðir sem geðsjúklingar. Stundin fékk leyfi til að birta hugleiðingu Ingólfs í heild: 

Ég er geðsjúklingur – sem getur verið bara ansi fínt svona inn á milli – og ég þekki fullt af öðrum geðsjúklingum. Þessi hatramma barátta við sjálfið reynist fólki erfið – óáþreifanlegur sársauki og hávær alsæla – sífellt að reyna miða sig við rúðu­strikað samfélagið og staðsetja sig öðru hvoru megin við línuna.

Geðsjúklingarnir sem ég þekki eru allir gott fólk. Flestir þeirra eiga sameiginlegt að vera viðkvæmir, næmir og hæfileika­ríkir. Sveiflurnar gefa aukna dýpt til þess að setja lífið í samhengi – því maður er alltaf að leita svara, maður vill skilja og mæta skilningi.

Það er óhugnaleg bylgja voðaverka í heiminum og eins og gefur að skilja flytja fjöl­miðlar fréttir af ódæðunum. Þegar komið er í ljós hve margir hafa fallið eða særst beinast spjótin að árásar­manninum sem er krufinn til mergjar. Þá er jafnan brýnast að segja frá því að maðurinn hafi verið geðsjúkur og jafnvel þurft á einhverjum tíma­punkti æviskeiðs síns að leggjast inn á geðdeild til skamms tíma. Ef maðurinn er ekki múslimi, þá hlýtur hann nú að vera geðsjúkur. Ráðgátan leyst, eða hvað?

Voðaverk sem þessi eiga ekki skylt við það að vera geðsjúkur – heldur eitthvað allt annað og alvarlegra. Þung­lyndur maður tortímir ekki sjálfum sér ásamt full­setinni flugvél vegna þess að þung­lyndið gerði honum það. Ekki frekar en það skipti máli hverrar trúar hann er. Eða hvort hann sé haldinn líkamlegum sjúkdómi. Eða hvað hann borðaði í morgunmat. Mér finnst það heldur einfeldnings­legur dóms­úrskurður að undir­strika geðheilsu árásar­manns í fjöl­miðlum til þess eins að loka málinu. Það vekur fordóma gegn geðsjúklingum sem hafa ekkert unnið sér til saka og myndu ekki gera nokkrum manni mein – nema hugsanlega sjálfum sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár