Tónaflóð geti ekki talist „íburðarmiklir dagskrárliðir“

Fjölmiðla­nefnd hefur sektað Ríkis­útvarpsins ohf. um 1,5 milljónir króna fyrir að hafa brotið gegn lögum með kostun þáttanna Tónaflóð sumrin 2020 og 2021.

Þættirnir Tónaflóð um landið voru á dagskrá í bæði útvarpi og sjónvarpi.
Þætt­irnir Tónaflóð um landið voru á dag­skrá í bæði útvarpi og sjón­varpi. Mynd: RÚV

Fjölmiðla­nefnd telur Ríkis­útvarpið ohf. (RÚV) hafa brotið gegn lögum um Ríkis­útvarpið með kostun sjónvarps- og útvarps­þáttanna Tónaflóðs sumrin 2020 og 2021 og telur hæfilega stjórnvalds­sekt vegna brotsins vera 1,5 milljónir króna. Í ákvörðuninni, sem birt var á vef nefndarinnar í gær, kemur fram að RÚV hafi eftir „vandlega yfirlegu“ og „eftir á að hyggja“ komist að því að kostun þáttanna hafi ekki samræmst auglýsinga­reglum RÚV og lögum um Ríkis­útvarpið. Hvorki hafi verið um að ræða þáttaröð sem talist geti „íburðar­mikill dagskrár­liður” samkvæmt lögum og skilgreiningu í auglýsinga­reglum RÚV, né geti einstakar útsendingar, að Menningar­nótt frátalinni, talist íburðar­miklar eftir efni sínu.

Þættirnir Tónaflóð um landið voru í beinni útsendingu á RÚV og Rás 2 sumrin 2020 og 2021. Um var að ræða beina útsendingu frá sumar­tónleikum miðlanna og voru þættirnir sendir út frá öllum lands­hlutum, einum í senn. Þar var lögð áhersla á íslenska tónlist og slagara sem tengdust viðkomandi lands­hlutum. Hljóm­sveitin Albatross bauð til sín þekktum og óþekktum söngvurum úr hverjum lands­hluta og voru áhorf­endur í sal á meðan sóttvarnar­takmarkanir leyfðu. Ferðinni í kringum landið lauk með Menningar­nætur­dansleik í Gamla bíói í Reykjavík.

Ábending eftir birtingu ársskýrslu

Fjölmiðla­nefnd barst ábending í vetur þar sem vísað var til yfirlits yfir kostaða dagskrár­liði á RÚV, sem birt hafði verið í ársskýrslu RÚV fyrir rekstrar­árið 2020. Fram kom að aðilinn sem ábendinguna sendi teldi nauðsynlegt að taka til gagn­gerrar skoðunar hvort allir dagskrár­liðir sem kostaðir hefðu verið árið 2020 uppfylltu skilyrði fyrir kostun og heimild til þess að rjúfa dagskrá með auglýsinga­hléum. Var sérstak­lega vísað til þess að þættirnir Tónaflóð gætu ekki talist íburðar­miklir dagskrár­liðir í skilningi undan­tekningar­ákvæðis 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkis­útvarpið.

Megin­regla 2. mgr. 7. gr. laga um Ríkis­útvarpið felur í sér að Ríkis­útvarpinu er óheimilt að afla tekna með kostun
dagskrár­efnis. Þó má víkja frá þeirri reglu í eftir­farandi tilvikum:

Í greinar­gerð með frumvarpi því sem varð að lögum um Ríkis­útvarpið eru nefnd dæmi um íburðar­mikla dagskrár­liði sem falla undir undan­tekningu frá banni við kostun dagskrár­efnis en það eru t.d. útsendingar frá Ólympíu­leikum, Evrópu- og heims­meistara­keppni í hand­knattleik eða knatt­spyrnu og Söngva­keppni evrópskra sjónvarps­stöðva.

Við meðferð málsins vísaði Ríkis­útvarpið til þess að útsending RÚV og Rásar 2 frá árlegum útitónleikum Menningar­nætur í Reykjavík í ágúst teljist vera íburðar­mikill dagskrár­liður, eins og fram komi í auglýsinga­reglum RÚV og RÚV Sölu. Ákveðið hafi verið sumarið 2020, meðal annars í ljósi þeirra aðstæðna sem þá ríktu, að fjölga tónleikum og færa þá lands­byggðinni. Hafi tónleikar verið haldnir víðs vegar um landið það sumar undir merkjum Tónaflóðs. Til hafi staðið að ljúka tónleika­röðinni með stór­tónleikum frá Arnarhóli í Reykjavík á Menningar­nótt en ekki hafi orðið af því vegna sótt­varnar­ráðstafana. Þess í stað hafi lokatón­leikarnir farið fram í Gamla bíói. Hafi þættirnir Tónaflóð verið hugsaðir sem „safn tónleika í einu knippi“, þ.e. að litið hafi verið svo á að einstakir tónleikar væru samofnir útsendingu lokatón­leika Menningar­nætur og þannig hafi þeir verið taldir flokkast undir að vera íburðar­mikill dagskrár­liður.

Jafnframt kom fram í svörum RÚV, líkt og fyrr greinir, að eftir vandlega yfirlegu telji RÚV, eftir á að hyggja, að kostun Tónaflóðs 2020 og 2021 hafi ekki samrýmst auglýsinga­reglum RÚV og lögum nr. 23/2013. Hvorki hafi verið um að ræða þáttaröð sem talist geti íburðar­mikill dagskrár­liður samkvæmt lögum og skilgreiningu í auglýsinga­reglum RÚV, og hafi enda aldrei verið litið svo á, né geti einstakar útsendingar, að Menningar­nótt frátalinni, talist íburðar­miklar eftir efni sínu. Þá hafi ekki verið rétt að líta á allar útsendingarnar sem eina samfellda heild, líkt og raunin hafi verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár