Norræna ráðherranefndin hættir starfsemi í Norðvestur-Rússlandi

Norrænu samstarfs­ráðherrarnir ákváðu á fundi sínum í Grænlandi í dag að loka upplýsinga­skrifstofum Norrænu ráðherra­nefndarinnar í Norð­vestur-Rússlandi um "óákveðinn tíma". Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Rússland ákvað að skilgreina skrif­stofu nefndarinnar í Péturs­borg sem útlenskur erindreki í Rússlandi, en sú ákvörðun var tekin 12. janúar síðastliðinn. Í skriflegu svari starfs­manns ráðherra­nefndarinnar við fyrir­spurn Kjarnans um málið á sínum tíma sagði að í bréfi saksóknara í Péturs­borg vegna þessa hefðu komið fram ásakanir um að nefndin stundaði pólitíska starfsemi í Rússlandi.

Samkvæmt rússneskum lögum ber félaga­samtökum sem stunda pólitíska starfsemi, og eru fjár­mögnuð erlendis frá, að skrá sig sem útlenskan erindrekar. Skrif­stofur ráðherra­nefndarinnar í Rússlandi hafa hins vegar haft stöðu frjálsra félaga­samtaka frá því að hún var opnuð árið 1995.

Ekki forsendur til að reka skrifstofuna áfram


Í frétt á vef Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar vegna þessa er haft eftir Carsten Hansen, danskur for­maður nor­rænu sam­starfs­ráð­herr­anna, að ákvörðun Rúss­lands um að skil­greina skrif­stof­una í Pét­urs­borg sem útlenskan erind­reka, eða "erlendan aðila", hafi valdið því að ákvörð­unin um að hætta starf­semi hefur nú verið tekin. „Rík­is­stjórnir nor­rænu land­anna telja það óásætt­an­legt að halda starf­sem­inni áfram sem erlendur aðili. Í augna­blik­inu eru ekki for­sendur til þess að skrif­stofan starfi áfram. Starf­semi Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í Norð­vestur-Rúss­landi hefur það mark­mið að bæta tengsl og sam­skipti milli Norð­ur­landa og Norð­vestur-Rúss­lands, og það getum við ekki gert sem erlendur aðili.“

Dagfinn Høybråten, framkvæmda­stjóri Norrænu ráðherra­nefndarinnar, segir að nefndin hafi haft umfangs­mikla starfsemi í Rússlandi. „Hún verður ekki lögð niður á einni nóttu heldur mun það útheimta mikla vinnu og endur­skipulagningu yfirvalda, samstarfs­aðila og starfs­fólks.“

Ákvörðunin mun hafa áhrif á samtals tuttugu starfs­menn sem starfa á skrif­stofunum í Norð­vestur-Rússlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár