Frakkar gera loftárásir á íslamska ríkið - Pútín vill samstöðu

Franski herinn hóf í dag loft­árásir á valin skotmörk í Sýrlandi, en látið var til skarar skríða gegn æfinga­búðum Íslamska ríkisins í austur­hluta Sýrlands, skammt frá Deir al-Zour. Francois Hollande, forseti Frakk­lands, staðfesti þetta í dag og sagði að æfinga­búðirnar hefðu verið eyði­lagðar. Árásin hefði miðað að því að draga máttinn úr grunn­starfi Íslamska ríkisins, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Banda­ríkis herinn hefur verið langsamlega atkvæða­mestur í barátt­unni við Íslamska ríkið, einkum í Sýrlandi og Írak, og hefur loft­árásum, oft svokölluðum dróna-árásum, verið beitt til þess að berjast við vopnaðar sveitir.

Hollande, sem veitti viðtöl eftir fundahöld í New York, þar sem sjötugasta allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna fer fram, sagði að nauðsynlegt væri að finna pólitíska lausn á stríðinu í Sýrlandi og Írak, en forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, gæti ekki verið hluti af henni.

Ekki er langt síðan fyrstu herþoturnar frá Rússlandi voru sendar til Sýrlands, en þær börðust gegn Íslamska ríkinu við hlið stjórnar­hers Sýrlands. Vladímir Pútín, forseti Rússlands, hefur sagt það nauðsynlegt að mynda bandalag gegn Íslamska ríkinu þannig að það verði raun­verulega brotið niður með samstöðu. Allir þurfi að leggja sitt af mörkum í þeirri baráttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár