Norður-Kórea sprengdi kjarnorkusprengju

Jarð­skjálfti upp á 5,3 á Richter-kvarða fannst þegar sprengjan var sprengd.

Yf­ir­völd í Norður-Kór­eu hafa staðfest að þau hafi sprengt kjarn­orku­sprengju í gær og að skotið hafi tek­ist vel. Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC, en jarð­skjálfti upp á 5,3 á Richter-kvarða fannst í grennd við sprengju­svæðið.

Þetta er í fimmta skipti sem Norður-Kórea er upp­vís af kjarn­orku­tilraun­um sem þess­um en svo virðist sem sprengj­an hafi aldrei áður verið jafn öfl­ug í til­raun­um þeirra.

Rík­is­fjöl­miðill Norður-Kór­eu staðfesti sprengjuna skömmu eft­ir að jarðskjálft­ar mæld­ust, og var sprengjan sögðu hafa heppnast vel.

Yf­ir­völd í Suður-Kór­eu telja að þetta sé stærsta til­rauna­skot Norður-Kór­eu til þessa, og hafa fordæmt sprenginguna harðlega og sagt hana til marks um „brjálæði“ einræðis­herrans Kim Jong-un. Bandarísk stjórn­völd hafa þegar fordæmt spreninguna og sagt að hún geti haft alvarlega afleiðingar.

Í frétt BBC kemur fram, að Barack Obama Bandaríkja­forseti hafi rætt við yfirvöld í Japan og Suður-Kóreu, og fullvissað þau um skilyrðis­lausan stuðning vegna ógnarinnar frá Norður-Kóreu.

Samkvæmt frétt New York Times er þetta fimmta kjarnorku­sprengingin í tilrauna­skyni sem Norður-Kórea framkvæmir, og sú umfangs­mesta til þessa.

Stjórn­völd í Suður-Kóreu lögðu áherslu á að óhjákvæmilegt væri, að alþjóða­samfélagið myndi fordæma aðgerðirnar og einangra Norður-Kóreu enn meira. Park Geun-Hye, forseti Suður-Kóreu, sagði ekki hægt að sitja aðgerðar­laus hjá í þetta skiptið.

Fréttin verður uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár