Keppinautar vilja RÚV af auglýsingamarkaði en þeir sem framleiða auglýsingar alls ekki

Alþingi er þessa dagana með endur­flutt frumvarp sjálfstæðis­manna um auglýsinga­laust RÚV til meðferðar. Keppinautar telja sumir að þjóðin fái mun betri ríkis­fjölmiðil ef hann selji ekki auglýsingar, en fram­leiðendur auglýsinga óttast um störf í geiranum.

Ráðherra fjölmiðlamála stefnir á að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði.
Ráðherra fjöl­miðla­mála stefnir á að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­mark­aði. Mynd: Bára Huld Beck

Fjölmiðla­fyrirtækin Torg, Síminn og Sýn styðja heilshugar að Ríkis­útvarpið verði tekið af auglýsinga­markaði, eins og lagt er til í frumvarpi Óla Björns Kárasonar, þing­flokks­formanns Sjálfstæðis­flokksins, sem er nú í meðförum Alþingis eftir að hafa verið endur­flutt í upphafi árs.

Samband íslenskra auglýsinga­stofa er mjög á móti frum­varpinu og telur að það muni spilla fyrir sinni starfs­grein. Blaðamanna­félag Íslands er svo á þeirri skoðun að RÚV skuli hverfa af auglýsinga­markaði, en leggur áherslu á að ríkis­fjöl­miðillinn fái aukin rekstrar­framlög til að mæta tekjutapi.

Umræður um auglýsinga­sölu RÚV eru búnar að vera í deiglunni um langa hríð án þess að nokkrar breytingar séu gerðar, en Lilja Dögg Alfreðs­dóttir ráðherra fjölmiðla­mála ítrekaði nýlega að hún vildi sjá RÚV hverfa af auglýsinga­markaði. Hún hefur þó ekki kynnt frumvarp úr sínum eigin ranni um þau mál til þessa.

Auglýsingalaust RÚV í tveimur skrefum

Frum­varpið sem nú liggur fyrir þinginu, sem nokkrir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins eru skrifaðir fyrir auk Óla Björns, felur í sér að RÚV hætti alfarið samkeppnis­rekstri á auglýsinga­markaði 1. janúar 2024 og að það verði gert í tveimur skrefum.

Lagt er til að til að á aðlögunar­tíma sem hefjist 1. janúar 2023 hætti RÚV að stunda beina sölu á auglýsingum, kostun í útsendu efni RÚV verði bönnuð, hlutfall auglýsinga megi ekki fara yfir fimm mínútur á hvern klukku­tíma í útsendingar­tíma, auk þess sem óheimilt verði að slíta í sundur dagskrár­liði með auglýsingum.

„Ofrausn“ að ætla tvö ár til aðlögunar

Í umsögn Torgs, útgáfu­félags Frétta­blaðsins, Hringbrautar og DV, segir að taka ætti RÚV af auglýsinga­markaði fyrr en áætlað er í frum­varpinu. Þar segir að það sé „ofrausn“ að ætla RÚV svo rúman tíma til þess að gera breytingar og bent á að á síðustu árum hafi einka­reknir fjöl­miðlar þurft að „laga sig að gjör­breyttu rekstrar­umhverfi eins og hendi sé veifað.“

Þeir Sigmundur Ernir Rúnarsson aðal­ritstjóri Torgs og Jón Þórisson forstjóri fyrir­tækisins skrifa undir umsögn fyrir­tækisins og segja í henni að RÚV hafi almennt fært sig upp á skaftið í auglýsinga­sölu á undan­förnum árum og sé orðið „óvægnara í sölu­aðferðum sínum en löngum áður“. Sjálft ríkis­sjónvarpið hafi yfirboðið annað auglýsinga­sölufólk á markaðnum til að freista þess að fá stærri sneið af auglýsingafé fyrir­tækja, félaga og stofnana.

Þurfi að hugsa um annað en hag einkarekinna fjölmiðla

Samband íslenskra auglýsinga­stofa (SÍA) segir að skoða þurfi þá ákvörðun að taka RÚV af auglýsinga­markaði í stærra samhengi en einungis með tilliti til einka­rekinna fjölmiðla.

Í umsögn sinni segir SÍA að það myndi hafa verulegar afleiðingar á sjónvarps­auglýsingar og neytendur myndu verða af mikil­vægum upplýsingum um vörur og þjónustu. Aðrar sjónvarps­stöðvar hafi ekki það áhorf sem þurfi til að standa undir kostnaði við fram­leiðslu og birtingar.

„Sjónvarps­auglýsingar gegna mikilvægu hlutverki í vöru­merkja- og ímyndar­uppbyggingu fyrir­tækja. Það yrði erfiðara og dýrara fyrir þau að byggja upp virði vöru­merkja sinna þegar þau ná ekki augum og eyrum jafn margra. Brott­hvarf RÚV af auglýsinga­markaði myndi leiða til verri nýtingar á birtingafé fyrir­tækja, hærri kostnaðar og þar af leiðandi hærra vöruverðs,“ segir í umsögn SÍA, sem jafnframt fullyrðir að sú ákvörðun að taka RÚV af auglýsinga­markaði muni ekki auka áhorf á aðrar íslenskar sjónvarps­stöðvar.

„Það þýðir að það fjármagn sem nú fer í auglýsingar á RÚV færist ekki yfir á hinar sjónvarps­stöðvarnar. Líklegasta niður­staðan er að fjármagn sem nú fer til birtinga á sjónvarps­auglýsingum minnki því fram­leiðsla á íslenskum sjónvarps­auglýsingum mun dragastsaman. Það mun hafa áhrif á auglýsinga­stofur og aðrar greinar en fjöldi fólks í mörgum skapandi greinum kemur að fram­leiðslu íslenskra sjónvarps­auglýsinga, s.s. kvik­myndagerðar­fólk, leikarar, stílistar, tónlistar­fólk og starfs­fólk í eftir­vinnslu svo einhver séu nefnd. Það er því Ijóst að ákvörðun um að taka RÚV af auglýsinga­markaði mun hafa mikil áhrif á fjölda fyrir­tækja og starfa,“ segir í umsögn SÍA.

Sýn og Síminn telja það til bóta fyrir RÚV að fara af auglýsingamarkaði

Bæði Síminn og Sýn lýsa sig mjög fylgjandi því að RÚV hverfi af auglýsinga­markaði. Í umsögn Símans segir að það sé raunhæft að stefna að því að gera það í skrefum á fimm árum, án þess að bæta RÚV upp krónu af því fé sem ekki lengur muni streyma inn frá auglýsendum. Ríkis­útvarpið hafi nægt svigrúm til að hagræða í sínum rekstri.

Að auki segir í umsögn Símans, sem Magnús Ragnarsson framkvæmda­stjóri sölusviðs fyrir­tækisins er skrifaður fyrir, að „ánægjuleg afleiðing“ þess að hið opinbera fari af samkeppnis­markaði verði „miklu betra ríkis­útvarp“.

„Ríkis­útvarp þar sem dagskrár­ákvarðanir verða loks teknar af dagskrár­stjóra en ekki auglýsinga­deild. Ríkis­útvarp sem leggur rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningar­arfleifð í stað þess að gefa pizzur í beinum útsendingum frá verslunar­klösum. Ríkis­útvarp sem ekki slítur Krakka­fréttir frá aðal­fréttum vegna útdráttar í fjár­hættuspilum. Þannig ríkis­útvarp gæti orðið RUV allra lands­manna,“ segir í umsögn Símans.

Í umsögnum frá Sýn um málefni fjölmiðla hefur áður verið talað með þeim hætti að brott­hvarf RÚV af auglýsinga­markaði verði RÚV til góða. Í einni umsögn, sem Sýn lætur fylgja snaggaralegri umsögn sinni um þetta frumvarp Óla Björns, segir að staða RÚV muni „að líkindum styrkjast þegar ákvarðanir um dagskrá miðast ekki við áhorfs­mælingar og auglýsinga­tekjur heldur efnistök og gæði.“

RÚV fái meira fé úr ríkissjóði og fyrirsjáanleika til rekstrar

Í umsögn Blaðamanna­félagsins er vísað til fyrri umsagnar félagsins um frum­varpið, en þar var því fagnað að umræða færi fram á Alþingi um brott­hvarf Ríkis­útvarpsins af auglýsinga­markaði.

Höfuð­áhersla Blaðamanna­félagsins er þó sú „að tryggja beri rekstur RÚV með auknum fjár­veitingum úr ríkis­sjóði sem vega muni upp á móti tekjutapi þegar auglýsinga­sölu verður hætt“. Blaðamanna­félagið segir sömuleiðis nauðsynlegt að tryggja RÚV fjár­veitingu til lengri tíma, til dæmis 8-10 ára í senn og ákvæði þess efnis verði sett inn í þjónustu­samning.

„Ennfremur þarf að tryggja sjálf­stæði frétta­stofu RÚV innan stofnunarinnar, til að mynda með því að girða fyrir það að starfsemi frétta­stofu RÚV verði skorin niður, fari svo að fjár­veitingar til stofnunarinnar verði skertar,“ sagði einnig í umsögn Blaðamanna­félagsins frá því í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár