Enginn af þeim 185 kvótaflóttamönnum sem ríkisstjórnin ætlaði sér að taka á móti kominn til landsins

Ríkis­stjórn Íslands áætlaði að taka á móti 85 kvóta­flótta­mönnum árið 2020 og 100 á þessu ári. Að svo stöddu er enginn þeirra kominn til landsins en samkvæmt félagsmála­ráðuneytinu er von á 47 einstak­lingum frá Sýrlandi í byrjun september. Covid-19 faraldurinn hefur veikt stöðu flótta­fólks í heiminum til muna þar sem mun færri komast í öruggt skjól.

82 milljónir manna á flótta
82 millj­ónir manna á flótta Samkvæmt Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu Þjóðanna eru 82 millj­ónir manna á flótta í heim­inum. Af þeim eru 42% eða um 35 millj­ónir þeirra börn. Ísland sam­þykkti að taka á móti 185 kvótaflótta­mönnum á árunum 2020 og 2021. Enginn þeirra eru komin til lands­ins. Mynd: Aljazeera

Ríkis­stjórn Íslands samþykkti í samstarfi við Flóttamanna­stofnun Sameinuðu þjóðanna að taka á móti 85 kvóta­flótta­mönnum árið 2020 og 100 kvóta­flótta­mönnum árið 2021. Enginn af þeim 185 kvóta­flótta­mönnum sem Ísland samþykkti að taka við eru komnir til landsins. Þetta stað­festir Grétar Sveinn Theodórsson, upplýsinga­fulltrúi félagsmála­ráðuneytisins. 

Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu hafa tafir orðið á móttöku þeirra sem ríkis­stjórnin samþykkti að taka á móti bæði árin vegna Covid-19 faraldursins. Að sögn Grétars er fyrsti hópur þeirra sem átti að taka á móti árið 2020, níu fjöl­skyldur frá Sýrlandi sem dvelja sem flótta­fólk í Líbanon og Íran, væntanlegar til landsins í byrjun september. Alls eru það 47 einstaklingar sem eiga að koma þá og búið er að panta flug fyrir þá. 

Samkvæmt tölfræði frá Flóttamanna­stofnun Sameinuðu þjóðanna voru 752.217 flótta­menn stað­settir á Norður­löndunum og Eystrasalts­löndunum árið 2019. Á Íslandi voru 16 flótta­menn á hverja 10 þúsund íbúa árið 2019 saman­borið við 248 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár