Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman í dag líkt og flesta aðra daga lista yfir þá tíu hluti sem þykja hvað merkilegastir í dag.


  1. Syriza bar sigur úr býtum í kosningunum í Grikk­landi í gær og Alexis Tsipras og hans fólk mun nú mynda ríkis­stjórn með Sjálf­stæðum Grikkjum.

  2. Allt að 13 þúsund flótta­menn komu til Austur­ríkis á laugar­daginn, en leiðtogar Evrópu­ríkja hyggjast funda í vikunni um leiðir til að dreifa flótta­fólkinu sann­gjarnara á milli ríkjanna.

  3. Bandaríkja­menn ætla að taka á móti 100 þúsund flótta­mönnum árið 2017, en búið var að samþykkja að taka á móti 70 þúsund manns.

  4. Apple hefur staðfest að tölvu­hakkarar höfðu komið fyrir skrám sem gerðu þeim kleift að ná í upplýsingar notenda í fjölmörgum smáforritum sem hægt er að sækja fyrir Apple-vörur.

  5. Bretar ætla að verja tveimur milljörðum punda í byggingu kjarnorku­vers í Englandi.

  6. Ríkis­stjórn nýs forsætis­ráðherra Ástralíu, Malcoms Turnbull, hóf störf í dag. Meðal ráðherra er Marise Payne, sem verður fyrsta konan í starfi varnarmála­ráðherra ríkisins.

  7. Xi Jinping, forseti Kína, mun á morgun koma í þriggja daga opinbera heimsókn til Banda­ríkjanna. Fyrsti viðkomu­staður er Seattle í Washington, sem flytur meira út til Kína heldur en nokkurt annað ríki í Banda­ríkjunum.

  8. Frans páfi hitti Fidel Castro, fyrr­verandi forseta Kúbu, um helgina. Frans var í heimsókn í Havana og hélt meðal annars útimessu sem þúsundir sóttu.

  9. Japanir hafa samþykkt heimildir til að herlið geti farið út fyrir Japan í fyrsta sinn frá því í seinni heim­styrjöldinni. Heimildin er til staðar til að koma í veg fyrir stríð, segir forsætis­ráðherrann Shinzo Abe. Friðar­sinnar segja hins vegar að breytingarnar gangi gegn stjórnar­skrá landsins.

  10. Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri Atlantshafs­banda­lagsins, heimsækir í dag Úkraínu í fyrsta sinn. Hann mun verða viðstaddur undir­ritun nýrrar hernaðar­tilskipunar sem skilgreinir Rússa sem hernaðar­legan andstæðing Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár