Leggja til að þjóðin kjósi um NATO

Meiri­hluti þing­flokks VG leggur til að þess verði minnst að 70 ár eru liðin frá sam­þykkt NATO-aðildar Íslands með því að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ina.

Fáni Atlantshafsbandalagsins.
Fáni Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Mynd: EPA

Átta þing­menn Vinstri grænna hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Þau vilja að borin verði upp spurn­ingin: Vilt þú að Ísland gangi úr Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO)? Tveir svar­mögu­leikar skuli vera í boði: Já og nei.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Andrés Ingi Jónsson en með honum eru þing­menn­irnir Ari Trausti Guð­munds­son, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Ólafur Þór Gunn­ars­son, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir.

Tíma­setn­ing þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar skuli vera í sam­ræmi við lög um fram­kvæmd þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna en sam­kvæmt þeim skal þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fara fram í fyrsta lagi þremur mán­uðum og í síð­asta lagi einu ári eftir að þings­á­lykt­un­ar­til­laga hefur verið sam­þykkt á Alþingi.

Aðild Íslands að NATO umdeild frá upphafi

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að með henni sé lagt til að þess verði minnst að 70 ár eru liðin frá sam­þykkt NATO-aðildar Íslands með því að efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ina.

„Aðild Íslands að NATO hefur verið umdeild frá upp­hafi. Miklar mót­mæla­að­gerðir voru á Aust­ur­velli 30. mars 1949 þegar Alþingi sam­þykkti að Ísland yrði stofn­að­ili að banda­lag­inu og í kjöl­farið voru 24 ein­stak­lingar dæmdir til skil­orðs­bund­innar fang­els­is­vistar. Deil­urnar áttu eftir að setja svip á allt þjóð­lífið og alla stjórn­mála­um­ræðu á næstu ára­tugum. Þjóðin skipt­ist í fylk­ingar með eða á móti hernum. Þrátt fyrir það hefur almenn­ingur aldrei haft beina aðkomu að mál­inu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Enn fremur kemur fram að Ísland hafi verið her­laust þá sem nú en aðild að NATO hafi verið sam­þykkt þegar óvissa um kalda stríðið var uppi. Kalda stríð­inu sé hins vegar lokið og NATO hafi einnig fyrir löngu tekið að sér verk­efni sem fari út fyrir upp­runa­legan til­gang sinn. Banda­lagið sé löngu hætt að skil­greina sig sem ein­ungis banda­lag um sam­eig­in­legar varnir aðild­ar­ríkja. Í stað þess að horfa til beinnar árásar á eitt­hvert aðild­ar­ríkja banda­lags­ins, og skuld­bind­ingar ann­arra aðild­ar­ríkja að hrinda slíkri árás, sé nú litið á meinta ógn við ein­stök aðild­ar­ríki sem ógn og jafn­vel árás á önnur. Með túlkun banda­lags­ins á ógn við öryggi um víða ver­öld fylgi nær opin heim­ild um hern­að­ar­í­hlutun, enda beiti NATO sér um heim allan í mun rík­ari mæli en áður. Ísland hafi þannig ítrekað orðið aðili að stríðs­á­tökum – ýmist beint eða óbeint í gegnum NATO-aðild­ina – eins og stríð­inu í Líbíu árið 2012 eða loft­árásum vest­ur­veld­anna á Sýrland á síð­asta ári.

Óskhyggja um stöðu Íslands í hernaðarmálum

Bent er á í grein­ar­gerð­inni að þvert á þessa stöðu telji 44 pró­sent Íslend­inga að Ísland sé hlut­laust í hern­að­ar­málum. Þessi mis­skiln­ingur á stöðu Íslands – eða kannski frekar ósk­hyggja – komi fram í rann­sókn frá árinu 2018 um sýn Íslend­inga á utan­ríkis- og örygg­is­mál, þar sem jafn­framt komi fram að 57 pró­sent aðspurðra telja að her­leysi og frið­sam­leg tengsl við nágranna­ríki tryggi helst öryggi Íslands, en aðeins 17 pró­sent telja aðild­ina að NATO stuðla að því.

„Þessar áherslur almenn­ings kall­ast á við þá breyttu mynd af öryggis- og varn­ar­málum sem birst hefur á und­an­förnum árum og m.a. má sjá nokkuð móta fyrir í þjóðar­ör­ygg­is­stefnu fyrir Ísland. Þær ógnir sem að okkur steðja eru þess eðlis að borg­ara­legar lausnir virka betur en hern­að­ar­legar, hvort sem er í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum, við­brögðum við nátt­úruvá eða heil­brigð­is­ör­yggi. Þessum áskor­unum verður ekki mætt með end­ur­skipu­lagn­ingu her­stjórn­ar­kerfis NATO á norð­ur­slóðum, líkt og birst hefur á und­an­förnum miss­erum, eða því að her­lið hafi var­an­legan við­búnað á Kefla­vík­ur­velli, en sú hefur verið raunin und­an­farin þrjú ár. Í aðdrag­anda þeirrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem hér er lögð til er mik­il­vægt að staðið verði fyrir fræðslu og umræðu um örygg­is­mál og þróun þeirra inn í 21. öld­ina, eðli NATO og annað sem snýr að afleið­ingum hern­aðar og víg­væð­ingar,“ segir í grein­ar­gerð með til­lögu þing­manna VG.

Umræðan styrkir málstað friðar og samkenndar

Telja þing­menn VG að frið­ar­sinnar hafi ekk­ert að ótt­ast varð­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild Íslands að NATO. Reynslan sýni að umræðan styrkir mál­stað friðar og sam­kenndar, enda séu flestir þeirrar skoð­unar að það sé rangt að drepa annað fólk. Það sé löngu kom­inn tími til að leiða til lykta kröfu fólks á Aust­ur­velli 1949 um að þjóðin sjálf fái að taka ákvörðun um aðild að NATO og stríðs­rekstri þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár