„Ævarandi skömm“ alþjóðasamfélagsins

Forseti Frakk­lands segir að alþjóða­samfélagið þurfi að stilla til friðar í borgar­stríðinu í Sýrlandi. Annað verði því til ævarandi skammar.

Francois Hollande, forseti Frakk­lands, sagði í ávarpi sínu á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í gær að alþjóða­samfélagið þyrfti að stilla til friðar í borgar­stríðinu í Sýrlandi. Annað yrði því til „ævarandi skammar“ og nauðsynlegt væri að taka höndum saman, og grípa inn í atburða­rásina.

Hollande, sem flutti ávarpið með tilfinninga­þrungnum hætti, sagði að skelfingin í landinu væri nánast ólýsanleg. „Nóg er nóg,“ sagði Hollande. Efna­vopnum væri beitt, sprengjum varpað á lestir hlaðnar hjálpar­gögnum, óbreyttir borgar væru að strá­felldir í loft­árásum og hernaði á jörðu niðri.

Nauðsynlegt væri að fá fleiri þjóðir að hjálpar­starfi í landinu, og auka þungann í pólitískum viðræðum sem geti leitt til friðar.

Barack Obama Bandaríkja­forseti talaði fyrir því að borgara­stríðið í Sýrlandi yrði ekki leyst með hernaði, heldur með pólitískum viðræðum. Þær yrðu að vega þyngst, og þar geti margar þjóðir - stórar og smáar - lagt mikið af mörkum. En hann lagði mikla áherslu á að Banda­ríkin væru í lykil­hlutverki, og Rússar einnig.

John Kerry, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, átti í gær fund með Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands, um ástandið í Sýrlandi eftir að vopnahlé fór þar út um þúfur í dag. Kerry sagði við frétta­menn að möguleiki á vopnahléi væri enn til staðar, eftir fundinn.

Áður en borgara­stríðið í Sýrlandi braust út bjuggu 22,5 milljónir í landinu, en talið er að meira en helmingur þeirra, eða um 12 milljónir, séu nú á flótta, ýmist utan eða innan landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár