Að gera það eða gera það ekki

Sigríður Jóns­dóttir leik­hús­gagn­rýn­andi brá sér í Borg­ar­leik­húsið og sá Teprurnar.

Jörundur Ragnarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir
Jörundur Ragn­ars­son og Vala Kristín Eiríks­dóttir Fólk á tíma­mótum eftir tíu ára sam­band. Mynd: Iris Dogg Einarsdottir
Leikhús

Teprurnar

Niðurstaða:

Teprurnar - ***

eftir Anthony Neilson

Borgarleikhúsið

Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason

Leikarar: Jörundur Ragnarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir

Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui

Lýsing: Fjölnir Gíslason

Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason

Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Þýðing: Ingunn Snædal

Gefðu umsögn

Andri og Eva standa á tíma­mótum eftir tæp­lega tíu ára sam­band. Síðasta árið hefur verið þeim erfitt. Þau hafa ekki stundað kyn­líf í fjórtán mán­uði og fjóra daga. Samt er ekk­ert að. Eða hvað? Í kvöld er komið að loka­upp­gjör­inu, fyrir framan alþjóð. Ann­að­hvort gera þau það eða ekki.

Litla sviðið í Borg­ar­leik­hús­inu er einkar hent­ugt fyrir leik­verk eins og Teprurnar eftir Skotann Anthony Neilson. Leik­ritið tak­markast við tíma­bundnar aðstæður í tak­mörk­uðu rými. Hilmir Snær Guðnason leik­stýrir og gengur til verks­ins stað­fastur. Hann leggur áherslu á per­sónur verks­ins og sög­una í sam­vinnu við Sean Mackaoui, sem hannar leik­mynd og bún­inga. Við erum stödd í hlið­ar­heimi, þar sem leik­endur eru með­vituð um nær­veru áhorf­enda og í stöð­ugum sam­skiptum við tækni­fólk leik­húss­ins. Með þeim í liði er Ingunn Snædal, sem þýðir og stað­færir text­ann ein­stak­lega vel, þar stendur setn­ingin „Illa fengin stand­pína“ upp úr.

Áföllum kvenna hent inn í framvindu

…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár