Katrín: Stjórnarskrárumræða föst í skotgröfum skilar ekki árangri

For­sæt­is­ráð­herra hélt ræðu á Alþingi í dag þar sem hún fjall­aði um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá og hvernig hún sæi fyrir sér að sú vinna færi fram.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fjall­aði aðal­lega um tvö mál­efni í pontu á Alþingi á fyrsta þing­fundi árs­ins; um stöð­una á vinnu­mark­aði og end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Í ræð­unni sagð­ist Katrín telja að stjórn­ar­skrárum­ræða sem föst er í skot­gröfum myndi ekki skila miklum árangri. Ýmist mætti engu breyta – þar sem gild­andi stjórn­ar­skrá væri talin heil­agt orð – eða að litið væri á þær til­lögur sem skilað var á sínum tíma af Stjórn­laga­ráði sem heil­agt orð.

Hún sagði að ýmis ákvæði í gild­andi stjórn­ar­skrá þörfn­uð­ust svo sann­ar­lega end­ur­skoð­unar en til­lögur Stjórn­laga­ráðs væru mis­mikið reif­aðar í sam­fé­lag­inu og mis­mikið ígrund­aðar. „Það skiptir hins vegar máli að við tökum mark á því sem spurt var um í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 2012, þ.e.a.s. hvort almenn­ingur vildi byggja á þeim drögum sem Stjórn­laga­ráð hafði skilað. Og það skiptir því máli að við höfum þær til­lögur til hlið­sjónar,“ sagði hún.

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra og ­for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, greindi for­mönnum þing­flokk­anna frá því á nefnd­ar­fundi um heild­­ar­end­­ur­­skoðun stjórn­­­ar­­skrár­innar í októ­ber síð­ast­liðn­um að hann teldi ekki vera þörf á heild­­ar­end­­ur­­skoðun stjórn­­­ar­­skrár­inn­­ar. Sú skoðun hans var á skjön við stjórn­­­ar­sátt­­mála rík­is­stjórn­ar­innar og áætlun for­manna­nefndar um stjórn­ar­skrár­mál.

Í febr­­úar á síð­asta ári skip­aði Katrín nefnd um stjórn­­­ar­­skrár­­mál sem skipuð er öllum for­­mönnum þing­­flokk­anna. Mark­mið nefnd­­ar­innar er að leggj­­ast í heild­­ar­end­­ur­­skoðun á stjórn­­­ar­­skránni. Á sjö­unda fundi nefnd­­ar­inn­ar, þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, til­kynnti Bjarni nefnd­inni að hann vildi láta færa til bókar að hann telji þess ekki þörf að end­­ur­­skoða stjórn­­­ar­­skránna í heild sinni heldur vinna á­fram með helstu ákvæði, auð­lind­ir, umhverfi, þjóð­ar­at­kvæði og fram­sals­á­kvæði.

Einstök viðfangsefni mislangt á veg komin

Katrín sagði í ræðu sinni að for­menn flokka hefðu nú átt níu fundi um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar en í upp­hafi þessa kjör­tíma­bils lagði hún fram þá hug­mynd að lokið yrði við heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar á tveimur kjör­tíma­bilum, þessu og því næsta. „Þar var enn fremur lagt til ákveðið vinnu­lag, það er að segja hvernig við­fangs­efnin yrðu tekin fyrir, í hvaða röð og hvernig staðið yrði að vinn­unni. Nú á síð­asta fundi okkar sem var á fimmtu­dag­inn lagði ég fram end­ur­skoðað minn­is­blað sem tekur mið að því hvernig vinnan hefur þró­ast. Það er ljóst að umræða um ein­stök við­fangs­efni eru mis­langt á veg komin. Sum höfum við rætt árum og ára­tugum saman,“ sagði hún. Sem dæmi nefndi hún ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign. Sömu­leiðis hefði mikið verið rætt um ákvæði um umhverf­is­vernd og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og fram­sal vald­heim­ilda. Þetta væru þau mál sem þau hefðu fyrst sett á dag­skrá af for­mönnum og full­trúum flokk­anna en þó ekki þau einu.

„Enn fremur höfum við tekið til umræðu for­seta­emb­ættið í stjórn­ar­skrá og stöðu fram­kvæmd­ar­valds. Ég hef sagt að ég telji þessa vinnu hafa gengið vel. Opinber umræða að und­an­förnu hefur kannski fyrst og fremst snú­ist um bók­anir ein­staka nefnd­ar­manna um sýn þeirra og skoð­anir á stjórn­ar­skránni og mér telst raunar til að nán­ast allir for­menn hafi ýmist bókað eða tekið undir bók­anir ann­arra á nýliðnum fundum. En þessi vinna snýst kannski minnst um þessar bók­anir,“ sagði Katrín.

Vill samráð við almenning

Hún sagð­ist leggja mikla áherslu á að þau sem sitja við þetta borð, for­menn og full­trúar stjórn­mála­flokka á Alþingi, tækju þátt í þess­ari vinnu af fullri alvöru og skil­uðu af sér góðum til­lögum með góðar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá. Að um þær yrði haft sam­ráð við almenn­ing en ekki endi­lega sama sam­ráðið um ólíkar til­lögur.

„Ýmist munum við nýta sam­ráðs­gátt­ina. Við getum efnt til rök­ræðukann­ana. Við höfum rætt að gera skoð­ana­kann­anir en það er mik­il­vægt að við nýtum kjör­tíma­bilið allt til starfa því sagan sýnir okkur að hætt er við því að stjórn­ar­skrár­breyt­ingar eða til­lögur að þeim, sem kastað er inn í umræð­una á Alþingi á síð­ustu vikum fyrir kosn­ingar, nái ekki fram að ganga, meðal ann­ars vegna ágrein­ings um óskyld mál­efni,“ sagði hún.

Ekki útilokað að hún leggi fram sínar eigin tillögur

Katrín nefndi að nú væri í raun ekk­ert sem stopp­aði hana í því að leggja fram hennar eigin til­lögur að stjórn­ar­skrár­breyt­ingum og að auð­vitað væri ekki úti­lokað að hún gerði það ef ekki næð­ist tölu­verð sam­staða um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá. „En það er mín ein­læga sann­fær­ing að þessar breyt­ingar verði betri ef við ræðum þær sam­eig­in­lega og vinnum sam­eig­in­lega að þeim. Þótt við höfum ólíka sýn á hversu miklu eigi að breyta og hvernig eigi að breyta.“

Að lokum sagði Katrín að hún teldi að stjórn­málin skuld­uðu almenn­ingi það að gera breyt­ingar á stjórn­ar­skrá. Hafa þyrfti til hlið­sjónar vinnu und­an­far­inna ára en til þess að þær breyt­ingar gengu í gegn þá þyrfti Alþingi Íslend­inga að sam­þykkja þær. „Þess vegna skiptir raun­veru­legu máli að ná sem breiða­stri sam­stöðu um slíkar breyt­ingar. Og það sem mun skipta almenn­ing hér á landi mestu í þessu máli eru raun­veru­legar breyt­ingar til fram­tíðar en ekki upp­hróp­anir nútíð­ar­innar. Og raun­veru­legar breyt­ingar sem bæði eru í þágu almenn­ings og umhverfis eru löngu tíma­bærar og nú á þessu ári þar sem við fögnum 75 ára afmæli lýð­veld­is­ins og gild­andi stjórn­ar­skrár þá held ég að við höfum mikil tæki­færi til þess að sýna fram á að stjórn­málin eru reiðu­búin að gera sitt í þessu mik­il­væga máli,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár