Gluggað í glugga

Flestir hafa glugga fyrir augum daglega, horfa út um þá, eða inn, virða þá fyrir sér úr fjarlægð. Flestum finnst það aum vistar­vera þar sem ekki er einhver glugga­bora (kannski að Bakka­bræðrum undan­skildum) . Gluggarnir eru sem sé mikil­vægur þáttur í daglegu lífi nútíma­fólks þótt ekki hafi þótt ástæða til að byggja yfir þá sérstakt safn fyrr en nú. Á nýju glugga­safni í Söborg, norðan við Kaupmanna­höfn eru 300 gluggar til sýnis.

Það var árið 2006 sem maður að nafni Lars Kann-Rasmussen ákvað að koma upp glugga­safni. Stundum er sagt að skylt sé skeggið hökunni og það á sannarlega við í þessu tilviki. Lars þessi Rasmussen, sem nú er 76 ára, var um árabil framkvæmda­stjóri Velux fyrir­tækisins, sem er mjög þekkt fyrirtæki í "glugga­heiminum". Faðir hans, Villum Rasmussen, var bygginga­verk­fræðingur og hafði, að eigin sögn, oft velt því fyrir sér hvernig á því stæði að háaloft (sem bæði eru mörg og stór í Danmörku) væru svo lítið notuð. Hann komst að þeirri niður­stöðu að þetta væri vegna þess að á dönskum háaloftum væri sama ástandið og forðum hjá bræðrunum á Bakka, gluggana vantaði. Hann lét ekki þar við sitja heldur stofnaði árið 1941 fyrirtæki gagngert til að smíða glugga fyrir ofanljós (þakglugga). Ári síðar var glugga­smiðjan skírð Velux.

Með glugga á heilanum


Villum Rasmus­sen (1909 -1993) var hug­mynda­ríkur og fékk sam­tals 55 einka­leyfi sem flest eða öll tengd­ust gluggum. Fyrsta einka­leyfið var útbún­aður sem gerði kleyft að velta við opn­an­lega hluta glugg­ans, til þess að auð­velda þrifin. Hann sagði ein­hverju sinni í við­tali að hann væri með glugga á heil­anum og sér þætti það bara allt í lagi. "Þegar maður hugsar svona mikið um eitt­hvað, eins og til dæmis glugga, fær maður alls kyns hug­myndir, sumar snjallar aðrar ekki," sagði Villum Rasmus­sen í þessu sama við­tali.

Það var árið 2006 sem maður að nafni Lars Kann-Rasmussen ákvað að koma upp glugga­safni. MYND: villumwindowcollection.com

Sonurinn stofnaði gluggasafn


Hér verður ekki rakin saga þessa fyr­ir­tækis sem nú er 74 ára gam­alt. Starfs­menn­irnir voru í upp­hafi örfáir, fjórir eða fimm, en eru í dag rúm­lega tíu þús­und. Í Danmörku eru starfs­menn tvö þús­und og sex hund­ruð en starf­semin fer fram í fjöl­mörgum löndum víða um heim.

Það var árið 2006 sem maður að nafni Lars Kann-Rasmussen ákvað að koma upp gluggasafni. MYND:villumwindowcollection.com
Það var árið 2006 sem maður að nafni Lars Kann-Rasmus­sen ákvað að koma upp glugga­safni. MYND:villumwindowcollection.com

Þótt Villum Rasmussen dytti margt í hug hvarflaði þó aldrei að honum að gluggar ættu sérstakt erindi á safn. Sonurinn Lars hafði fyrir um það bil tuttugu árum, skömmu eftir dauða föður síns, fengið þá hugmynd að koma upp sérstöku glugga­safni. Það var þó ekki fyrr en árið 2006 að ákvörðunin um safnið var tekin og þá var hafist handa við að safna gluggum. Lars vildi að safnið yrði alþjóðlegt en ekki "eitthvert Velux safn" eins og hann orðaði það. Hann lagði líka mikla áherslu á að safnið myndi eignast (eða fá að láni) sem fjöl­breyttast úrval glugga, bæði hvað varðaði tíma og staði. Það reyndist bæði flókið og tímafrekt að afla sýningar­gripanna, oftar en ekki hefur það nefnilega orðið hlut­skipti glugga að enda á haugunum, eða sem eldiviður, þegar hús hafa verið rifin eða endur­byggð.

Elstu gluggarnir frá því um 1600


Glugga­safnið í Söborg var opnað 15. apríl síð­ast­lið­inn. Þar eru til sýnis um það bil þrjú hund­ruð gluggar, þeir elstu frá því um 1600, þeir yngstu frá þessu ári. Sumir eru sýndir í veggjum, eins og þeim þar sem þeir voru upp­haf­lega, aðrir standa á gólfi eða bara einir og sér, enn aðrir hanga niður úr loft­inu. Suma er hægt að opna og þessir sýn­ing­ar­gripir eru ólíkir mörgum öðrum að þarna má snerta.

Á safninu er einskonar tíma­gangur þar sem hægt er að ferðast um tímann og fylgja þannig breytingum sem orðið hafa í áranna og aldanna rás. Sagt er frá útlits­breytingum, gömlum og nýjum efnivið sem notaður hefur verið í glugga og tísku­sveiflum í glugga­gerð. Þegar safnið var opnað greindi stofn­andinn, Lars Rasmussen, frá því að þessir þrjú hundruð gluggar sem nú eru í safninu væru aðeins byrjunin. "Stefnum á þúsund" sagði hann.

Á dönsku heitir gluggi vindue, á ensku window. Þessi orð eru dregin af gömlu norrænu orði sem við Íslendingar þekkjum vel en notum í annarri merkingu. Nefnilega vindauga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár