Ríkir Bandaríkjamenn koma sér fyrir í Púertó Ríkó

Ríkir Bandaríkja­menn hafa að undan­förnu flutt til Púertó Ríkó, eftir að hafa tekið tilboði stjórn­valda í landinu um að flytja lögheimili sitt til landsins. Þar býr fólkið í vellystingum og nýtur skattalegra fríðinda. Einn þeirra er Ben Eiler, 38 ára gamall verðbréfa­miðlari, en í viðtali við Inc.com, segist hann njóta þess að búa í landinu og ekki síst njóta góða veðursins.

En af hverju að flytja til Púertó Ríkó frá Banda­ríkjunum? Ástæðan er meðal annars lægri skattar en í Banda­ríkjunum, í bland við ævintýra­mennsku. Þrátt fyrir að landið hafi búið við efnahagslegar þrengingar í meira en áratug, og atvinnu­leysi mælist ríflega 13 prósent, þá hafa stjórn­völd freistað þess að ná til landsins ríku fólki sem er tilbúið að stofna til rekstrar og skapa þannig störf. Áætlun var hrint í framkvæmd árið 2012 sem miðaði að því að trekkja að vel stætt fólk, bjóða því góð skattaleg skilyrði - þar er lítinn sem engan tekju­skatt - og vonast til þess að það hafi góð áhrif á viðskiptin.

Að minnsta kosti 250 manns hafa flutt til Púerto Ríkó frá Banda­ríkjunum síðan áætluninni var hrint í framkvæmd, og hafa viðskipti sem tengjast þessum hópi numið allt að 200 milljónum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 26 milljörðum króna, að því er fram kemur í umfjöllun Inc.com.

Púertó Ríkó er sérstakt sambands­svæði Banda­ríkjanna, staðsett austan við Dóminíska lýðveldið og vestan við Jómfrúa­eyjar í norð­austurhluta Karíbahafs. Íbúum hefur fækkað þar um fimm prósent frá árinu 2010, en í byrjun árs í fyrra voru íbúarnir 3,5 milljónir manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár