Vilja stemma stigu við „óhófsbrúðkaupum“ - eru hraðgiftingar kannski lausnin?

Margir kirkjunnar menn í Danmörku telja æskilegt að dregið verði úr því tilstandi sem tilheyrir giftingum nútímans. Kostnaðurinn við að ganga í hjónaband sé komin út yfir öll skynsemis­mörk. Giftingin eigi ekki að snúast um ytra prjál og glamúr, vera einskonar leik­sýning, þar sem tilgangurinn og þær skyldur sem hjóna­bandið leggur einstaklingum á herðar fellur í skuggann. Kirkjunni beri að bregðast við og reyna að stemma stigu við „óhófs­brúðkaupunum“ eins og danskur prestur komst að orði í viðtali við Kristeligt dagblad.

Kirkja eða ráðhús


Hér í Danmörku fara lang flestar hjóna­vígslur fram í kirkjum eða ráð­húsum borga og bæja. Hvort kirkjan eða ráð­húsið verður fyrir val­inu er oft­ast spurn­ing um val og afstöðu hjóna­efn­anna. Þótt margir ímyndi sér að gift­ing í ráð­hús­inu sé íburð­ar­minni og ódýr­ari en kirkju­brúð­kaup er það ekki nærri alltaf til­fellið sam­kvæmt könnun pró­fess­ors við Háskól­ann í Álaborg.

Í rannsókn hans á giftingum og giftingar­undir­búningi kom í ljós að margt ungt fólk veigrar sér við að ganga í hjónaband vegna kostnaðarins sem slíku fylgir. Fjöl­skylda og vinir vilja fá almennilega veislu, skreytt salar­kynni, skemmtikrafta, sérsaumaðan brúðar­kjól og kjólföt á brúðgumann. Þrátt fyrir að prestar og annað kirkjunnar fólk hafi árum saman bent á að rétt væri að fara sér hægar og leggja minna uppúr umgjörðinni í kringum hjóna­vígslurnar hefur það litlu breytt.

Margir, sem áður­nefndur prófessor í Álaborg ræddi við, segja að það sé erfitt að skera sig úr. Fólk haldi þá að annaðhvort séu brúðhjónin svo illa stödd fjárhags­lega að þau geti ekki haldið almennilega veislu eða þau séu algjörar nánasir, enginn kæri sig um slíkt. Þess vegna velji mörg pör að kosta miklu til, jafnvel meiru en þau hafi ráð á.

Hér og nú gifting


Í greina­flokki Kristi­lega Dag­blaðs­ins um gift­ingar og brúð­kaup er sagt frá því að í Borås í Svíþjóð hafi í nokkur ár verið hægt að láta pússa sig saman með hraði. Parið sem vill gift­ast þarf ein­ungis að fram­vísa per­sónu­skil­ríkjum til að hægt sé að fram­kvæma hjóna­vígsl­una. Þetta hefur að sögn gef­ist vel og nú hafa nokkrir danskir prestar og bisk­upinn í Viborg lýst áhuga sínum á því að danskir prestar taki upp þetta fyr­ir­komu­lag, til reynslu til að byrja með.

Biskupinn í Viborg sagði að svona „hér og nú“ gifting hljómaði svolítið „poppað“ en ef þetta gæti orðið til þess að draga úr kostnaði, og gerði fleirum kleift að giftast væri það tilraunarinnar virði. Hann sagði að samkvæmt dönskum lögum dygði tæpast að mæta bara með persónu­skilríkin í kirkjuna. „Ég á erfitt með að sjá fyrir mér að hér í Danmörku verði þetta eitthvað líkt því sem gerist í Las Vegas. Einhverskonar „drive in“ hjóna­vígslur,“ sagði biskupinn.

Kirkjan verður að aðlaga sig breyttum tímum


Kirkju­sókn í Danmörku hefur á und­an­förnum árum farið minnk­andi, eins og í mörgum öðrum löndum. Ástæð­urnar eru sjálf­sagt margar og mis­mun­andi. Mörgum finnst kirkjan vera of fjar­læg og prest­arnir ekki alltaf tala um það sem máli skiptir. Ein þeirra kirkna þar sem messu­gestum fór fækk­andi ár frá ári er St. Pauls kirkjan í Kaup­manna­höfn, skammt frá Jónshúsi.

Fyrir skömmu var ráðinn nýr prestur að kirkjunni, Kathrine Lilleør að nafni. Hún er fastur pistla­höfundur við dagblaðið Berlingske og skrifar þar um menn og málefni. Eftir að hún var ráðin að St. Pauls kirkjunni (sem er jafnframt kirkja Íslendinga í Kaupmanna­höfn) ber svo við að kirkjan er nánast troðfull af fólki á hverjum einasta sunnudegi. Í viðtali við eitt dönsku dagblað­anna um síðustu helgi var Lilleør spurð hvernig á því stæði að fólk flykktist í messur hjá henni. „Ætli fólki finnist bara ekki að ég tali um það sem skiptir máli í hinu daglega lífi,“ var svarið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár