Segir Bitcoin vera „túlipana 21. aldarinnar“

Prófessor í viðskipta­fræði­deild HÍ segir miklar verð­hækkanir á Bitcoin vera fjár­festinga­bólu og að heildar­framlag rafmynt­ar­innar til hagkerfisins verði neikvætt þegar bólan springur.

Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson

Verðþróun rafmyntarinnar Bitcoin á síðustu vikum svipar til Túlípana­æðisins í Hollandi á 17. öld, að mati Gylfa Magnússonar, prófessors í viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Samkvæmt honum er notagildi myntarinnar takmarkað og því magn viðskipta með hana takmarkað. Enn fremur segir hann að þar sem vinnsla hennar sé kostnaðarsöm mun Bitcoin eyða meiri verðmætum heldur en hún skapar.

Takmarkað notagildi

Í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn, fer Gylfi yfir notagildi Bitcoin, sem og annarra rafmynta, auk framtíðar­möguleika þeirra. Þar bendir hann á að lítið sé hægt að nota myntina við greiðslu­miðlun, þrátt fyrir að engar tæknilegar hindranir liggi þar að baki. Hins vegar sjái fáir kaupmenn ástæðu til að taka á móti greiðslu með Bitcoin, nema helst vegna viðskipta á jaðri hins svarta og hvíta hagkerfis.

Einnig bætir Gylfi við að óstöðugt gengi og vangeta bálka­keðju­tækninnar við að ráða við mikið magn viðskipta spili stórt hlutverk í að rafmyntir hafi ekki orðið að almennilegum greiðslu­miðli.

Nánast umhverfishryðjuverk

Helsti galli Bitcoin telur Gylfi þó vera að fram­leiðsla myntarinnar sé gríðar­lega kostnaðarsöm. Stað­festing færslna með myntinni krefst flókinna og orku­frekra tölvu­útreikninga, sem Gylfi kallar „gengdar­lausa sóun“, en stór hluti íslenskra gagnavera fæst einmitt við þetta.

„Þótt íslenska rafmagnið sé e.t.v. sæmilega umhverfis­vænt þá á það almennt ekki við um rafmagn sem notað er í þessu skyni,“ bætir Gylfi við. „Í heimi sem glímir við hnattræna hlýnun vegna orku­notkunar er Bitcoin því alvarlegt umhverfis­slys – nánast umhverfis­hryðjuverk.“

Meiraflónshagkerfi

Vegna þess hve takmarkað notagildi Bitcoin hefur sem gjald­miðill áætlar Gylfi að meirihluti viðskiptanna sem átt hefur sér stað með rafmyntina á undan­förnum misserum sé drifinn áfram af spákaupmennsku. Þannig svipi kaupin á rafmyntinni til Túlipana­æðisins í Hollandi, þar sem verð kaup­samninga á túlipönum rauk upp úr öllu valdi vegna spákaupmennsku og hrundi svo á fyrri hluta 17. aldar.

Slíka þróun kallar Gylfi „meiraflóns­hagkerfi,“ þar sem kaupendur myntarinnar á yfirverði búast við að geta fundið einhvern annan sem sé til í að kaupa hana af þeim á enn hærra verði. Óhjákvæmilegt er að slík kerfi hrynji, að mati Gylfa.

„Þegar bólan hefur sprungið munu einhverjir hafa grætt einhver ósköp, þ.e. þeir sem sluppu út úr meiraflóns­hagkerfinu í tíma,“ segir Gylfi. „Það geta hins vegar ekki allir sloppið. Þeir sem koma með peninga inn á loka­metrunum í bólunni koma verst út. Meðal­fjár­festirinn mun tapa verulegum hluta sinnar fjár­festingar vegna þess að verðmæta­sköpunin í heild er ekki núll heldur neikvæð vegna kostnaðarins við náma­vinnsluna.“

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár