Fengum boð um aðild að viðbragðssveitum í september og þáðum það í janúar

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra þáði boð Breta um aðild að sam­eig­in­legum við­bragðs­sveitum, Joint Expeditionary Force, með bréfi til varn­ar­mála­ráð­herra Bret­lands þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þáði boð Breta um aðild að JEF í janúar.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra þáði boð Breta um aðild að JEF í jan­úar. Mynd: Bára Huld Beck

Varn­ar­mála­ráð­herra Bret­lands bauð Íslandi að ger­ast aðili að sam­hæfðum við­bragðs­sveitum Breta, Joint Expeditionary Force (JEF), með bréfi til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra 15. sept­em­ber í fyrra. Utan­rík­is­ráð­herra til­kynnti síðan Bretum að Ísland hefði þegið boðið með svar­bréfi til breska varn­ar­mála­ráð­herr­ans þann 11. jan­úar.

Þetta kemur fram í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um aðild Íslands að JEF, sem til­kynnt var um í síð­ustu viku. Ísland er fyrsta ríkið sem bæt­ist inn í þennan tíu ríkja sam­starfs­vett­vang sem Bretar leiða frá því árið 201, er Svíþjóð og Finnland skrif­uðu undir sam­komu­lag um að ger­ast aðilar að sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­unum.

Kjarninn spurði ráðu­neytið hvenær póli­tísk ákvörðun hefði verið tekin um að ger­ast aðilar að þessum sam­starfs­vett­vangi og hvenær boð um inn­göngu hefði borist.

Til stendur að borg­ara­legur sér­fræð­ingur frá Íslandi starfi á vett­vangi JEF þegar fram í sækir, en í svari ráðu­neyt­is­ins við spurn­ingu um hvað slíkur sér­fræð­ingur muni fást við segir að starfs­lýs­ing hafi ekki enn verið mótuð.

Í svar­inu kemur einnig fram að varn­ar­mála­full­trúi við sendi­ráð Íslands í London muni sinna sam­starf­inu fyrir Íslands hönd sam­hliða öðrum verk­efnum, fyrst um sinn.

Auk Bret­lands, sem leiðir sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­irnar, eru Danmörk, Eistland, Noregur, Finnland, Lettland, Litháen, Holland og Svíþjóð aðilar að Joint Expeditionary Force, ásamt Íslandi.

Fyrsta formlega verkefni JEF var í mars

Joint Expeditionary Force er, eins og Kjarninn fjall­aði um á sunnu­dag­inn, hugsað sem vett­vangur fyrir sam­vinnu Breta og vina­þjóða í hern­aði og öðrum verk­efnum. Í til­kynn­ingu bresku rík­is­stjórn­ar­innar um aðild Íslands sagði að með JEF sé sér­stök áhersla lögð á norð­ur­slóðir, Norður-Atl­ants­haf og Eystra­saltið, þar sem sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­irnar geti stutt við „fæl­ing­ar­stell­ingar“ ein­staka ríkja og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Hugsunin er sú að sam­starfs­ríkin geti, ef þau vilji leggja Bretum lið í ein­hverjum verk­efnum, komið hratt að málum með sínar eigin sveitir. JEF getur bæði gripið til aðgerða með eða óháð Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Dæmi sem stundum hefur verið tekið um hvernig JEF geti starfað er það hvernig ríki sem síðar urðu hluti af þessu sam­starfi studdu við aðgerðir Breta er ebólu­far­aldur braust út í Vestur-Afríku árið 2014.

Fyrsta form­lega verk­efni sam­eig­in­legu við­brags­sveit­anna var hins vegar í mars á þessu ári, en þá fóru þrjú skip úr breska flot­anum inn í Eystra­saltið þar sem slóg­ust í eft­ir­lits­ferð með skipum úr flotum Eista, Letta og Litháa og æfðu sam­vinnu.

Við þetta til­efni var haft eftir Ben Wallace, varn­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, í til­kynn­ingu ráðu­neytis hans að aðgerðin í Eystra­salt­inu væri skýrt dæmi um getu sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­anna. Verið væri að tryggja að bresk skip og mann­skap­ur­inn um borð væri reiðu­bú­inn undir að takast á við krefj­andi aðstæður við hlið banda­manna frá Eist­landi, Lett­landi og Litháen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár