Heimskviður aftur á dagskrá Rásar 1

Einum og hálfum mánuði eftir að tilkynnt var um að Heims­kviður, frétta­skýringa­þáttur um erlend málefni, yrði ekki lengur á dagskrá Rásar 1 hefur stjórn­endum RÚV snúist hugur.

Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir erum ritstjórar Heimskviða.
Guð­mundur Björn Þor­björns­son og Birta Björns­dóttir erum rit­stjórar Heimskviða. Mynd: RÚV

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Heimskvið­ur, sem hafði verið á dag­skrá Rásar 1 und­an­farið rúmt ár, var gert að hætta göngu sinni í des­em­ber vegna hag­ræð­ing­ar­að­gerða hjá Rík­is­út­varp­inu sem kalla á upp­stokkun í dag­skránni. Um er ræða þátt sem hefur miðlað ítar­legum umfjöll­unum um erlend mál­efn­i.

Nú, tæpum tveimur mánuðum síðar, hefur verið ákveðið að setja Heims­kviður aftur á dagskrá og mun hann hefja endur­göngu sína á Rás 1 á ný 23. janúar og verður framvegis á laugar­dögum kl. 12:40.

Þátturinn er samstarfs­verkefni Rásar 1 og frétta­stofu RÚV. Umsjónar­menn og ritstjórar þáttarins verða sem fyrr Birta Björns­dóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson. Í tilkynningu frá RÚV er haft eftir Birtu að viðbrögð hlustenda, bæði á meðan að þátturinn var í loftinu og þegar greint var frá því að hann yrði tekinn af dagskrá, hafi sýnt að áhugi fólks á erlendum fréttum sé ótvíræður.

Guðmundur segir á sama stað að þátturinn verði með örlítið breyttu sniði. „Hann verður 30 mínútur og sem fyrr leitumst við við að gera ítarlegar og vandaðar frétta­skýringar um málefni líðandi stundar, um allt það sem gerist ekki á Íslandi.“

Þegar ákveðið var að taka Heims­kviður af dagskrá í lok nóvember sagði Þröstur Helgason, dagskrár­stjóri Rásar 1, í samtali við Kjarnann að það væri gert vegna hagræðingar­aðgerða.

„Við erum að setja á dag­skrá nýjan þátt í hádeg­inu sem heitir ein­fald­lega Hádeg­ið. Þar er um að ræða frétta­þátt sem inni­heldur frétta­skýr­ing­ar, þar á meðal erlendar í anda þeirra sem voru í Heimskvið­um, við­töl og umræð­ur­,“ sagði Þröstur þá í svari sínu, en hann boðaði líka að í upphafi þessa árs yrði nýr þáttur með erlendum frétta­skýringum tekinn á dagskrá Rásar 1.

Nú hefur verið ákveðið að sá þáttur verði Heims­kviður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár