Segir fyrirkomulag í tengslum við siðamál fullkomnlega ótækt

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar mun fara fram á það að Alþingi kalli eftir aðstoð Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu við að koma siða­málum þings­ins í sóma­sam­legt horf.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Í ljósi síð­ustu atburða er aug­ljóst, og hefur blasað við í ein­hvern tíma, að það fyr­ir­komu­lag sem nú er stuðst við á Alþingi í tengslum við siða­mál er full­komn­lega ótækt – og Alþingi ræður ekki við það hlut­verk eitt og sér að lag­færa það.

Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á Facebook-síðu sinni í dag. Hann mun fara fram á það að Alþingi kalli eftir aðstoð Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu við að koma þessum málum í sóma­sam­legt horf.

Greint hefur verið frá fyrstu nið­ur­stöðu siða­nefnar Alþingi en nefndin telur að ummæli þing­flokks­for­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævars­dótt­ur, sem hún lét falla þann 25. febr­úar 2018 um akst­urs­greiðslur til þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ásmundar Frið­riks­sonar, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn.

Í stöðu­upp­færslu Loga kemur jafn­framt fram að lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­stofnun ÖSE hafi meðal ann­ars það hlut­verk að aðstoða aðild­ar­ríki í við­leitni þeirra til að koma á og við­halda góðum stjórn­ar­háttum og trausti almenn­ings. Liður í því sé að aðstoða þjóð­þing aðild­ar­ríkj­anna við að setja sér siða­reglur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár