„Mikil reiði og sorg í París“ - Freyr Eyjólfsson skrifar frá borginni

„Hryðjuverka­árás“ segir Francois Hollande um skot­árásina í París í hádeginu, sem er mann­skæðasta hryðjuverka­árás í Frakk­landi í tvo áratugi. „Árás á helstu gildi og hugsjónir franska lýðveldisins.“

Skot­árásin í hádeginu virðist hafa verið vel undirbúin og þaul­hugsuð. Árásar­mennirnir sem komust undan, virðast hafa verið þraut­þjálfaðir hermenn. Vopnaðir hríð­skota­rifflum myrtu þeir tíu blaðamenn skopamyndablaðsins Charlie Hebdo og tvo lögreglu­menn. Charlie Hebdo er háðsádeilu­blað sem hefur gert miskunnar­laust grín að stjórn­málamönnum, atvinnu­rekendum, trúar­brögðum og raun öllu í gegnum tíðina.

Skop­myndir og ádeilu­grín á sér langa hefð í Frakka­landi og þess vegna hefur blaðið ekki hikað við að birta myndir af Múhameð spámanni í gegnum tíðina þrátt fyrir marg­ítrekaðar hótanir herskárra múslima. Ekki er enn vitað hver ber ábyrgð á árásinni en blaðið birti nýlega skopmynd af leiðtoga Íslamska ríksins, Abu Bakr al-Bagdad.

Skop­myndin af Abu_Bakr-al-Bagdad.

Skopmyndin af Abu_Bakr-al-Bagdad.
Skop­myndin af Abu_Bakr-al-Bagdad.

Hæsta viðbúnaðar­stig er í gangi í París þessa stundina. Forseti Frakk­lands, Francois Hollande, tjáði fjöl­miðlum fyrir stundu að marg­ítrekaðar hryðjuverka­tilraunir hefðu verðu stöðvaðar af lögreglu og leyni­þjónustunni í París undan­farnar vikur. Hann mætti á vettvang stuttu eftir árásina og sagði þetta vera árás á málfrelsið; ógn við helstu grundvallar­gildi franska lýðveldisins.

Þetta er áfall fyrir íbúa Parísar, áfall fyrir starfandi blaðamenn. Sextíu blaðamenn um allan heim voru myrtir á síðasta ári – nú bætast tíu í hópinn.

Ógn og uppganga öfgahópa virðist vera á mikilli uppleið og eitt helsta einkenni 21. aldarinnar. Fjölda­morðin í dag eiga að hræða og ógna blaða­mönnum sem þora og ögra; hindra upplýsinga­flæði og hefta málfrelsi. Drepa grín, ádeilu og gagnrýni. Það virðist alla vega í fyrstu vera tilgangur þessarar árásar. Það er því afar sérkennilegt andrúms­loft í París þessa stundina; mikil reiði og sorg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár