Hundrað hjólreiðamenn sungu fyrir ósáttan gangandi vegfaranda

Hjólreiða­hópur og gangandi vegfarandi sem lentu í stympingum á göngustíg á Seltjarn­ar­nesi hittust á sátta­fundi. Hjólreiða­mennirnir sungu og buðu Eirík Einarsson velkominn.

Sáttafundur
Sátta­fundur Eiríkur Ein­ars­son og hjól­reiða­fólkið áttu góða stund saman.

Hundrað og tveir hjólreiða­menn hittu Eirík Einarsson á Seltjarnarnesi í gærkvöldi til að sýna honum vináttu­vott og sáttarhug.

Eiríkur hafði verið gangandi á göngustíg á Seltjarnarnesi fyrir skemmstu þegar hann lenti í stympingum við hluta meðlima sama hjólreiðahóp. Hann lýsti atvikinu í samtali við Stundina:  „Ég skil ekki almennilega hvað gerðist. Það var allt í einu eins og hefði verið ráðist á mig. Ég heyrði köll og allt í einu var ég farinn hálf­partinn að stympast við menn sem dynja á mér. Ég tók nokkur högg. Þeir skullu á öxlinni á mér,“ lýsti hann. Eiríkur viðurkenndi í samtali við Stundina að hann hefði misst stjórn á sér og sæi eftir því, en hjólreiða­mennirnir kvörtuðu undan því að hann hefði baðað út höndunum og staðið á miðjum göngu­stígnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár