Konan á kerrunni - sem gæti reynst þyngdar sinnar virði í gulli

Fjöl­miðlar um víða veröld greindu fyrr í vikunni frá uppboði þar sem olíu­málverk eftir Pablo Picasso var slegið á hæsta verði sem nokkru sinni hefur fengist fyrir listaverk. Það var þó sala á öðru lista­verki sem vakti meiri athygli í Danmörku.

Á uppboðinu sem fór fram í New York á vegum uppboðs­hússins Christies var margt góðra muna eins og ætíð. Margir Danir sperrtu líklega eyrun þegar frá því var greint að stytta eftir svissneska lista­manninn Alberto Giacometti hefði verið slegin á 141,3 milljónir dollara, sem samsvarar tæpum milljarði danskra króna, eða tæpum nítján milljörðum íslenskum. Þetta er sagt hæsta verð sem nokkru sinni hefur fengist á uppboði, fyrir mynda­styttu.

Áhugi Dana á þessum tíðindum stafar ekki af því að þetta umrædda listaverk sé á leiðinni til Danmerkur, að minnsta kosti svo vitað sé. Christies gefur aldrei upp nafn kaupanda en forstöðu­maður danska ríkis­lista­safnsins sagði í viðtali að það verð sem fengist hefði fyrir verkið samræmdist illa inneigninni á bankabók safnsins. Áhugi Dana á sér aðrar skýringar.

Brons­styttan efir Alberto Giacometti sem fór á metfé á listaverka­uppboði á dögunum. Mynd: EPA

Kerrukonan í Holstebro


Á torg­inu á göngu­göt­unni fyrir framan gamla ráð­húsið í Hol­stebro stendur stytta, úr bronsi, sem við fyrstu sýn lætur ekki mikið yfir sér. Þetta er Konan á kerrunni (eða vagn­inum) eða Maren á kerrunni eins og heima­menn kalla hana líka en hún hefur aldrei fengið opin­bert nafn. Um þessar mundir eru 50 ár síðan bæj­ar­stjórnin í Hol­stebro ákvað að kaupa þetta lista­verk Giacomettis (1901-1966) sem er í hópi þekkt­ustu lista­manna síð­ustu aldar. Styttuna vann Giacometti í gifs árið 1963 og hún var steypt í brons tveimur árum síðar.

Bronsstyttan efir Alberto Giacometti sem fór á metfé á listaverkauppboði á dögunum. Mynd: EPA
Brons­styttan efir Alberto Giacometti sem fór á metfé á lista­ver­ka­upp­boði á dög­unum. Mynd: EPA

Margir hafa velt því fyrir sér hvernig í veröldinni standi á því að þetta (mjög svo) verðmæta listaverk standi á göngugötu í Holstebro á Jótlandi. Á heimasíðu bæjar­félagsins er greint frá því að árið 1965 hafi bæjar­stjórnin ákveðið að þar sem gott borð væri fyrir báru í fjár­hirslum bæjarins væri lag að kaupa listaverk til að gleðja heimamenn og auðga andann.

Skömmu áður hafði Louisiana safnið norðan við Kaupmanna­höfn haldið sýningu á verkum Giocemettis, þangað höfðu tveir eða þrír bæjar­fulltrúar frá Holstebro lagt leið sína og hrifist af verkum hans. Nefnd á vegum bæjarins lagði svo leið sína til Parísar og þar var gengið frá kaupum á verkinu sem kostaði 210 þúsund danskar krónur, sem þótti ærin upphæð. Einhvern grun hafði bæjar­stjórnin um að ekki yrðu allir bæjarbúar jafn upprifnir yfir þessari styttu, kosningar voru að nálgast og öruggast þótti að setja styttuna í geymslu þangað til þær yrðu afstaðnar.

Úr geymslunni á kirkjutorgið og þaðan í göngugötuna


Þann 10. mars 1966 kom Konan á kerrunni fyrir augu bæj­ar­búa í Hol­stebro. Viðtökur voru blendnar, sumir hrósuðu stytt­unni, og bæj­ar­stjórn­inni, öðrum fannst lítið til hennar koma og nær hefði verið að nota pen­ing­ana í eitt­hvað þarf­legt, eins og það var orðað. Sumir sögðu þessa konu ber­sýni­lega þjást af nær­ing­ar­skorti og um skeið mátti iðu­lega á morgn­ana sjá sam­lokur eða annan mat við fætur hennar.

Tólf árum síðar var styttan svo flutt á núverandi stað, fyrir framan gamla ráðhúsið við Nörregade, aðal göngugötu bæjarins. Óhætt er að fullyrða að hún hefur vaxið í áliti meðal bæjarbúa enda kannski orðin þekktari en allir hinir (35 þús.) til samans. Sérstök samkoma var haldin árið 2006 í tilefni þess að þá voru liðin fjörutíu ár frá því að styttan var sett upp. Árið 2009 var efnt til samkeppni um tónverk til heiðurs henni, fjörutíu og eitt verk barst, Færeyingurinn Pauli i Sandagerdi bar sigur úr býtum.

Hefur einkalyftu


Bæj­ar­full­trúi í Hol­stebro sagði að í ljósi frétt­anna um sölu­verð stytt­unnar sem seld var á upp­boð­inu í New York mætti öruggt telja að ein­hverjir gætu vel hugsað sér að kom­ast yfir Konuna á kerrunni, án þess þó að borga fyrir. Ekki er talin mikil hætta á að henni verði rænt um hábjartan dag þegar fólk er á ferli í göngu­göt­unni.

Til að koma í veg fyrir að reynt verði að ræna henni í skjóli nætur er hún einfald­lega sett í geymslu, neðanjarðar. Hún stendur á einskonar lyftu­palli, skýtur upp kollinum klukkan tíu á morgnana og hverfur svo klukkan níu á kvöldin í híði sitt, undir göngu­götunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár