Rannsókn samkeppnisyfirvalda seinkar samruna laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum

Norska laxeldis­fyrirtækið Salmar, eigandi Arnarlax, segir að rannsókn samkeppnis­yfirvalda muni seinka samruna þess og Norway Royal Salmon, stærsta hluthafa Arctic Fish á Ísafirði. Páll Gunnar Pálsson. forstjóri Samkeppnis­eftirlitsins, segir að yfir­lýsingar Salmar bendi til að fyrir­tækið hafi búist við að samruninn fengi hraðari afgreiðslu hjá yfir­völdum.

Rannsóknir seinka sameiningu
Rann­sóknir seinka sam­ein­ingu Rann­sóknir sam­keppn­is­yf­ir­valda á Íslandi og á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins seinka sam­runa Salmar og Norway Royal Salmon. Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Heida Helgadottir

Norska laxeldis­fyrirtækið Salmar, eigandi Arnarlax á Bíldudal, segir að samruni fyrir­tækisins við Norway Royal Salmon, eiganda Arctic Fish á Ísafirði, muni tefjast þar sem það hafi tekið lengri tíma að afla samþykkis samkeppnis­yfirvalda fyrir samrunanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Salmar til norsku kaup­hallarinnar í dag. Samruninn er til rann­sóknar hjá Samkeppnis­eftirlitinu á Íslandi sem og hjá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins. Norsk samkeppnis­yfirvöld hafa samþykkt samrunann fyrir sett leyti.

Í tilkynningunni segir: „Það ferli að fá nauðsynlegt samþykki eftirlits­aðila fyrir samrunanum hefur tekið lengri tíma en upphaf­lega var gert ráð fyrir þega samruna­áætlunin var gerð. Af þessum ástæðum telur Salmar að félagið þurfi að boða til hluthafa­fundar til að lengja tíma­frestinn sem félagið ætlar sér til að ganga frá samrunanum.“

Hefur áhrif á Íslandi

Umræddur samruni norsku félaganna myndi leiða til þess að tvö stærstu laxeldis­fyrirtæki Íslands yrðu í eiga sama aðila. Þetta myndi að öllum líkindum leiða til samruna þeirra þar sem Salmar hefur talað um að veruleg samlegðar­áhrif séu í rekstri fyrir­tækjanna tveggja. Samanlagt framleiða þessi tvö laxeldis­fyrirtæki rúmlega 50 prósent af þeim eldislaxi sem fram­leiddur er á Íslandi. Þetta gæti haft ýmis konar afleiðingar í för með sér á Vestfjörðum, meðal annars fækkun starfa vegna samlegðar­áhrifa. 

Svipaðir frestir hjá báðum stofnunum

Í svörum til Stundarinnar segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis­eftirlitsins, að stofnunin sé ennþá með samrunann til skoðunar sín megin. „Eins og fram kom í frétt á heimasíðu Samkeppnis­eftirlitsins í síðasta mánuði er samruninn til rann­sóknar hjá Samkeppnis­eftirlitinu og hjá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins.“

„Til­kynn­ingar til norsku kaup­hall­ar­innar gefa til kynna að sam­runa­að­ilar hafi gert ráð fyrir að rann­sókn sam­keppn­is­yf­ir­valda tæki skemmri tíma en reyndin er“
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins

Páll Gunnar segir að rann­sóknin á samrunanum sé hins vegar styttra á veg kominn hjá framkvæmda­stjórninni: „Rann­sóknin er nú á svokölluðum II. fasa hér á landi, en er enn á I. fasa hjá framkvæmda­stjórninni, sbr. upplýsingar á heimasíðu hennar hér. Lögbundnir tíma­frestir samkeppnis­yfir­valdanna tveggja eru áþekkir. Ástæða þess að samruninn var tilkynntur síðar til framkvæmda­stjórnarinnar var að ítarlegar forviðræður áttu sér stað milli samruna­aðila og framkvæmda­stjórnarinnar. Tilkynningar til norsku kaup­hallarinnar gefa til kynna að samruna­aðilar hafi gert ráð fyrir að rannsókn samkeppnis­yfirvalda tæki skemmri tíma en reyndin er.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár