Moody's spáir því að olíuverð haldist lágt lengi

Lánshæfis­mats­fyrirtækið Moody's telur að draga muni verulega úr umsvifum í olíu- og gasiðnaði á næstunni og verð á olíu muni haldast lágt fram á næsta ár. Verð á tunnu af hráolíu (crude oil) hefur lækkað mikið á undan­förnum mánuðum en það er nú um 50 Bandaríkja­dalir en var nærri 110 dölum fyrir um ári síðan. Töluverð hækkun varð samt á olíuverði á mörkuðum í dag, eftir að tölur bárust um minnkandi fram­leiðslu, nokkuð óvænt að sögn CNBC. Sé horft yfir árstímabil nemur lækkunin nærri 60 prósentum.


More @CBCNews: #Oil jumps by 4% as inventories drop. Up $2.50 US, trading above $47 a barrel. http://t.co/JnbXkfQdkh pic.twitter.com/y9my0CVk6D


— CBC News Alerts (@CBCAlerts) September 16, 2015

Norðmenn hafa miklar áhyggjur af stöðu mál, enda hagkerfi landsins háð olíu­iðnaði að miklu leyti. Samtals er talið að 136 þúsund störf í Noregi séu með einhverjum hætti tengd olíu-klasanum, þar á meðal eru 22 þúsund störf sem tengjast borunum og frum­vinnslu á olíu beint. Á vef viðskipta­miðilsins Dagens Næringsliv segir að fyrirtæki í Noregi þurfi að búa sig undir langt tímabil þar sem verð getur haldist í lægstu lægðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár