Ilmandi bækur fyrir jólin

Rithöfundar og ýmsir sem koma að bóka­útgáfu koma fyrir í hlaðvarps­þáttunum Bókahúsið sem Sverrir Norland stýrir. Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir er til viðtals í nýjasta þættinum og ræðir um bók sína Ilmreyr.

Það kennir ýmissa grasa í hlaðvarps­þættinum Bóka­húsinu sem Sverrir Norland stýrir. Í níunda þætti er rætt við Ólínu Kjerúlf Þorvarðar­dóttur sem gaf á dögunum út hina hugljúfu minninga­sögu Ilmreyr.

Bókin Ilmreyr er kveðja frá dóttur til móður en um leið óður til formæðra og -feðra sem háðu lífs­baráttu vestur á fjörðum.

Hólm­fríður Matthíasdóttir, oft kölluð Úa, er einnig til viðtals en hún er útgáfu­stjóri Forlagsins og hugar vakin og sofin að því að ilmandi nýjar bækur rati til lands­manna.

Gunnar Theódór Eggertsson sem skrifað hefur fyrsta bindið í Furðu­fjalli, skemmtilegri ævintýra­sögu fyrir krakka, ræðir um barna­bókmenntir í þættinum, en bók hans nefnist Norna­seiður. Gunnar hlaut Íslensku barna­bóka­verðlaunin 2008 fyrir fyrstu barnabók sína, Stein­dýrin, og var tilnefndur til Íslensku bókmennta­verð­launanna árið 2015 fyrir Drauga-Dísu.

Bókahúsið er hlaðvarp Forlagsins og þættina má nálgast á öllum helstu hlaðvarps­veitum.

Í Bóka­húsinu er rætt við höfunda en einnig aðra sem með einhverjum hætti koma að bóka­útgáfu. Þættirnir hófu göngu sína nú í haust og hefur þátta­stjórnandi farið um víðan völl í heimi bókmennta og bóka­útgáfu.

Á dögunum var rætt við Þorgrím Þráinsson sem miðlar sinni hvetjandi og jákvæðu lífsspeki í bókinni Verum ástfangin af lífinu og sendir einnig frá sér ungmenna­bókina Tunglið, tunglið taktu mig nú í haust.

Þá hefur Sverrir einnig rætt við systkinin Sigrúnu Eldjárn og Þórarin Eldjárn en þau sendu frá sér mynd­skreytta ljóðabók, Rím og Roms fyrr á árinu, auk þess Sigrún á svo barna­bókina Rauð viðvörun í jóla­bókaflóðinu og Þórarinn smásagna­safnið Umfjöllun. Þáttinn með viðtali við systkinin Eldjárn og Þorgrím Þráinsosn má finna hér að neðan.

Allir þættir Bóka­hússins eru aðgengi­legir á vef Forlagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár