Skuldir heimila aukast

Íslensk heimili urðu skuld­settari í fyrra, en skuld­setning þeirra hefur ekki aukist jafnhratt síðan í góðærinu fyrir hrun. Vaxandi útlán banka og lífeyris­sjóða gefur til kynna að skuld­setningin hafi aukist enn meira í ár.

Júní og júlí voru metmánuðir í útgáfu nýrra húsnæðislána
Júní og júlí voru met­mán­uðir í útgáfu nýrra hús­næð­is­lána Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skuldir heimila jukust um fimm prósent í fyrra og er það hraðasta aukning skulda frá árinu 2006. Samhliða skulda­aukningu hafa útlán banka og lífeyris­sjóða til heimila aukist, en mikil aukning þeirra á undan­förnum mánuðum bendir til enn meiri skuld­setningar í ár. 

Hagstofa birti í dag tölur um efnahags­stöðu heimila og fyrir­tækja fyrir árið 2019. Samkvæmt þeim jukust heildar­fjáreignir heimil­anna um rúmlega tíu prósent í fyrra, á meðan heildar­skuld­bindingar jukust um fimm prósent, ef tekið er tillit til lands­framleiðslu.

Þetta er annað árið í röð sem skuld­setning heimila eykst, en hlutfall skulda heimila af lands­framleiðslu hækkaði um rúmt prósent árið 2018. Á milli 2009 og 2018 lækkaði skulda­hlutfall heimila hins vegar milli ára, eða stóð í stað. Leita þarf aftur til ársins 2006 til að finna meiri aukningu í skuld­setningu heimila og í fyrra, en þá jókst skulda­hlutfall þeirra um átta prósent.

Samhliða aukinni skuld­setningu hefur útlánum banka og lífeyris­sjóða til heimila fjölgað allmikið á síðustu árum. Seðla­bankinn geymir þessar tölur, en ef hlutfall þeirra af lands­framleiðslu er skoðað sést að lántaka heimila hjá þessum stofnunum hefur vaxið jafnt og þétt frá árinu 2017. Þessa þróun má sjá á mynd hér að neðan.

Í kjölfar vaxta­lækkana Seðla­bankans í ár stórjókst svo lántakan, en júní og júlí voru metmánuðir í útgáfu húsnæðis­lána, líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður. Gera má ráð fyrir að skuld­setning heimila muni aukast enn frekar í ár, samhliða aukinni lántöku hjá bönkum og lífeyris­sjóðum.

Þrátt fyrir skulda­aukningu síðasta árs er eigna­staða heimila betri en áður. Eigið fé heimila, sem eru eignir þess umfram skuldir, jókst töluvert í fyrra og er það nú rúmlega tvöfalt meira en árleg lands­framleiðsla. Til saman­burðar var það jafnt lands­fram­leiðslunni fyrir tíu árum síðan, og hefur það því tvöfaldast sem hlutfall af henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár