Uhunoma í skýjunum – orðinn íslenskur ríkisborgari

Hann kom til Íslands 2019 eftir að hafa sætt alvar­legu ofbeldi í æsku sem og á flótta sem hann lagði í til að kom­ast undan bar­smíðum föður síns. En nú er hann kom­inn í skjól, Uhunoma Osa­yomore, ungi mað­ur­inn frá Nígeríu.

Uhunoma Osayomore.
Uhunoma Osa­yomore. Mynd: Af vef undirskriftarsöfnunar honum til stuðnings.

Uhunoma Osa­yomore, ungur karl­maður sem flúði ofbeldi og ofsóknir í Nígeríu hingað til lands, fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt í nótt. Uhunoma er í hópi tólf ein­stak­linga sem fengu rík­is­borg­ara­rétt er frum­varp þess efnis var afgreitt á Alþingi. Um 46 þús­und und­ir­skriftum var safnað er vísa átti honum frá Íslandi á síð­asta ári.

Uhunoma er fæddur árið 1999 í Nígeríu. Árið 2016, er hann var aðeins sextán ára að aldri, flúði hann heim­ili sitt eftir að faðir hans hafði myrt móður hans og yngsta systir hans lést af slys­förum.

Þetta var þó aðeins byrj­unin á þján­ingum stráðri leit unga manns­ins að friði og skjóli. Fyrsti við­komu­staður hans á flótt­anum var Lagos, höf­uð­borg­ar lands­ins, og lenti þar í hönd­um þræla­sala sem seldu hann man­sali og upp­hófst þar með hræði­legt ferða­lag sem leiddi hann til Íslands í októ­ber 2019.

Á leið­inni upp­lifði hann hrylli­lega hluti, varð vitni að morðum, var haldið föngn­um í fjár­húsi og varð ít­rekað fyr­ir kyn­ferðis­legu of­beldi. Í þrjú ár bjó hann í flótta­mann­a­í­búðum á Ítal­íu.

Uhunoma er í skýj­unum og trúir þessu varla

Hann hóf ferða­lagið sem barn en end­aði á Íslandi sem ein­stæður full­orð­inn maður, sögðu vinir hans sem stóðu að und­ir­skrifta­söfn­un­inni fyrir hann í fyrra.

Eftir komu hans til Íslands árið 2019 hófst það ferli að sækja hér um vernd. Á það féllust yfir­völd ekki og varð Uhunoma fyrir gríð­ar­legu áfalli er kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að synja honum um vernd á síð­asta ári. Hann lýsti líðan sinni í við­tali við Vísi skömmu síðar, eftir að hafa verið lagður inn á bráða­geð­deild er hann fékk frétt­irnar.

Nefndin hafði hins vegar fall­ist á end­ur­upp­töku máls hans og nú – rúmu ári síðan – er hann ekki aðeins kom­inn með vernd heldur orð­inn íslenskur rík­is­borg­ari.

Í við­tal­inu við Vísi lýsti hann t.d. því ofbeldi sem faðir hans hafði beitt hann. „Þegar ég fór að gráta sagð­ist hann ætla að hætta að berja mig,“ sagði Uhunoma. „En hann hætti aldrei.“

Örin eftir bar­smíð­arnar eru um allan lík­ama minn, sagði hann enn­fremur.

„Eftir nokkura ára bar­áttu, rekstur dóms­máls, fram­lagn­ingar fjölda end­ur­upp­töku­beiðna til kæru­nefndar útlend­inga­mála og söfn­unar um 50.000 und­ir­skrifta í einni stærstu und­ir­skrifta­söfnun Íslands­sög­unnar hefur Uhunoma fengið var­an­legt skjól og áður óþekkt öryggi í sínu lífi,“ skrifar Magnús D. Norðdahl, lög­maður hans, á Facebook-síðu sína. „Hann öðl­að­ist í nótt íslenskan rík­is­borg­ara­rétt á grund­velli laga frá Alþingi og getur um frjálst höfuð strokið. Rétt­lætið sigrar stundum.“

Magnús bætir við í sam­tali við Kjarnann að Uhunoma ætti enn erfitt með að trúa þessum góðum fréttum en að hann væri í skýj­unum yfir þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár