Afstaða yfirvalda í máli Uhunoma óbreytt eftir nýjan úrskurð kærunefndar

Kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi á föstu­dag eldri ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að synja Uhunoma Osa­yomore um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Ráð­herrum voru í febr­úar afhentar yfir 45 þús­und und­ir­skriftir vegna máls­ins.

Uhunoma Osayomore kom hingað til lands sem flóttamaður árið 2019.
Uhunoma Osa­yomore kom hingað til lands sem flótta­maður árið 2019. Mynd: Af vef undirskriftarsöfnunar honum til stuðnings.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála féllst síð­ast­lið­inn föstu­dag á end­ur­upp­töku máls hins níger­íska Uhunoma Osa­yomore, en stað­festi eftir sem áður eldri ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að synja umsókn hans um alþjóð­lega vernd hér á landi og dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Þetta segir lög­maður hans, Magnús D. Norðdahl, í sam­tali við Kjarnann.

Magnús segir að afstaða yfir­valda í mál­inu sé óbreytt, en sömu­leiðis að mál­inu sé ekki lokið, þar sem kraf­ist verði ógild­ingar á úrskurði kæru­nefndar fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Lög­mað­ur­inn seg­ist telja úrskurð­inn rangan og bætir við að það muni reyna á efn­is­at­riði þess­arar nýju nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar þegar málið fari fyrir hér­aðs­dóm.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála afgreiddi að sögn Magnúsar tvær end­ur­upp­töku­beiðnir sem sendar höfðu verið inn fyrir hönd Uhunoma með nið­ur­stöðu sinni á föstu­dag. Úrskurður kæru­nefnd­ar­innar frá því á föstu­dag hefur ekki verið birtur opin­ber­lega og Magnús seg­ist ekki geta afhent hann.

Yfir 45 þúsund undirskriftir afhentar í febrúar

Mál Uhunoma hefur verið tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum und­an­farna mán­uði. Yfir­vof­andi brott­vísun hans af landi brott var mót­mælt í febr­ú­ar­mán­uði, meðal ann­ars á sam­stöðu­fundi sem hald­inn var á Arn­ar­hóli 9. febr­úar. Á sama tíma var und­ir­skriftum safnað til stuðn­ings þess að íslensk stjórn­völd leyfðu Uhunoma að vera hér á landi til fram­búðar.

Þann 16. febr­úar voru Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra afhentar alls 45.744 und­ir­skriftir sem söfn­uð­ust við þann mál­stað að íslensk stjórn­völd veittu Uhunoma alþjóð­lega vernd eða dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Það er tíunda stærsta und­ir­skrifta­söfnun Íslands­sög­unnar, sam­kvæmt sam­an­tekt sem finna má á Wikipedia.

Á vef þar sem und­ir­skrifta­söfn­unin fór fram var saga Uhunoma sett fram: „Uhunoma er 21 árs og er frá Níg­er­íu. Árið 2016, þegar hann var aðeins 16 ára, flúði hann frá heim­ili sínu í Níg­er­íu eft­ir að faðir hans myrti móður hans og yngri syst­ir lést af slys­för­um.

[adspot]

Hann fór til Lagos, höf­uð­borg­ar lands­ins, og lenti þar í hönd­um þræla­sala sem seldu hann man­sali og upp­hófst þar með hræði­legt ferða­lag sem leiddi hann til Íslands í októ­ber 2019. Á leið­inni upp­lifði hann hrylli­lega hluti, varð vitni að morðum, var haldið föngn­um í fjár­húsi og varð ít­rekað fyr­ir kyn­ferðis­legu of­beldi. Í þrjú ár bjó hann í flótta­mann­a­í­búðum á Ítal­íu.

Hann hóf ferða­lagið sem barn en end­aði á Íslandi sem ein­stæður full­orð­inn maður,“ sagði á vef und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar.

Lög­mað­ur­inn Magnús hefur sagt að Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála hafi rang­lega talið að Uhonoma sé öruggur í heima­rík­inu Nígeríu. Það mat sé ekki síst rangt í ljósi þess að hann glími við alvar­leg and­leg veik­indi. Þá sé mat íslenskra stjórn­valda á aðstæðum mansals­fórn­ar­lamba í Nígeríu bæði ófor­svar­an­legt og rangt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár