Ólína harðorð um „karlpeninginn“ í Samfylkingunni

Þing­maður Sam­fylk­ingar er harð­orð í garð flokks­bræðra sinna sem hún segir kepp­ast við að boða dauða flokks­ins nema þeir fái að stjórna honum. „Ég bið flokknum vægðar gegn þessum sjálfs­morðsárásum örvænt­ing­ar­fullra for­manns­fram­bjóð­anda," segir hún.

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir nokkra sam­flokks­menn sína harð­lega fyrir að tala flokk­inn niður. Hún segir í færslu á Facebook „karl­pen­ing­inn í Sam­fylk­ing­unni kepp­ast við að boða dauða flokks­ins nema þeir fái að stjórna honum."

Þarna á Ólína vænt­an­lega við þá Magnús Orra Schram, vara­þing­mann og for­manns­fram­bjóð­anda, sem seg­ist ætla að leggja Sam­fylk­ing­una niður nái hann kjöri og stofna annan flokk, og Árna Pál Árnason, frá­far­andi for­mann, sem gagn­rýnir stöðu flokks­ins harð­lega í við­tali við DV í dag.

Ólína skrifar:

„Jæja, nú get ég ekki orða bund­ist vegna karl­pen­ings­ins í Sam­fylk­ing­unni sem kepp­ist við að boða dauða flokks­ins nema þeir fái að stjórna honum. Því miður fyrir ykkur strákar mínir þá er þetta ekki svona." Hún segir flokk­inn eiga alla mögu­leika á að dafna vel, fái hann frið fyrir fólki með þetta hug­ar­far, eins og hún orðar það.

„Sam­fylk­ingin er til orðin um jafn­að­ar­hug­sjón­ina. Þörfin fyrir jöfnuð, rétt­læti, sam­stöðu og lýð­ræði hefur sjaldan ef nokkru sinni verið brýnni en einmitt nú á dögum. En stjórn­mála­flokkar eru líka fólkið sem í þeim starfar. Sé starfið innt þannig af hendi að umhyggja fyrir hug­sjón­inni standi ofar per­sónu­legum metn­aði og athygli­þörf eru allar líkur á að vel tak­ist til. Því miður hefur nokkur mis­brestur orðið á því innan Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem menn kepp­ast nú við að gefa út dán­ar­vott­orðið af því þeir sjá ekki fram á að fá að ráða ferð­inni sjálfir.

Ég bið flokknum vægðar gegn þessum sjálfs­morðsárásum örvænt­ing­ar­fullra for­manns­fram­bjóð­enda. Við sem störfum í flokknum af heil­indum og hug­sjón eigum þetta ekki skilið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár