Orku náttúrunnar gert að slökkva á 156 götuhleðslum í Reykjavík

Straumur verður rofinn af öllum götu­hleðslum ON í Reykjavík frá og með mánudeginum 28. júní næst­komandi. Óvíst er hvenær hægt verður að hleypa straumi á þær að nýju.

Straumur verður rofinn af öllum götu­hleðslum Orku nátt­úrunnar (ON) í Reykjavík frá og með mánudeginum 28. júní næst­komandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrir­tækinu í dag.

Í henni segir að fyrir­tækið sjái sig knúið til þess að taka strauminn af þeim 156 götu­hleðslum sem fyrir­tækið hefur sett upp víðsvegar í Reykjavík. Það sé gert í kjölfar þess að Ísorka kvartaði yfir því að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er gjald­frjálst. Óvíst er, samkvæmt ON, hvenær hægt verður að hleypa straumi á þær að nýju. Viðskipta­vinum ON er bent á að hrað­hleðslur þeirra verða enn opnar sem og götu­hleðslur í Garðabæ.

Berglind Rán Ólafs­dóttir, framkvæmda­stýra ON, segir þetta vera ömurlega stöðu, bæði fyrir þau sem byggt hafa upp þessar götu­hleðslur en ekki síður fyrir rafbíla­eigendur.

„Þetta er fyrst og fremst að koma niður á þeim fjölmörgu rafbíla­eigendum sem geta ekki haft eigin bílastæði við heimili sín til að setja upp heima­hleðslur eða hafa einfald­lega ekki efni á því. Það er einlæg ósk mín að aðilar deilu Reykja­víkurborgar og Ísorku komi málum svo skjótt sem unnt er í farveg sem tryggir að deilan tefji ekki það mikilvæga verkefni sem orku­skiptin í samgöngum er,“ segir hún í tilkynningunni.

Sigurður Ástgeirsson, framkvæmda­stjóri Ísorku, sendi frá sér yfir­lýsingu síðdegis í dag þar sem því er hafnað að fyrir­tækið hafi lagt fram kvörtun eða kröfu um að slökkt yrði á hleðslu­stöðvunum. „Ísorka lagði fram kvörtun til kæru­nefndar útboðmála 2020. Samhliða rannsókn þeirrar kæru ákvað RVK að krefja ON um að setja stöðvarnar upp vitandi að málið var í rannsókn. Kæru­nefndir ógildi samninginn og sektaði Reykja­víkurborg. Reykja­víkurborg er sú sem er rót vandans. ON setti stöðvarnar upp að beiðni Reykja­víkurborgar. Ég harma að Ísorka sé gerð ábyrgð fyrir afleiðingum á brotum og ákvörðun Reykja­víkurborgar. Ísorku er það alveg að meina­lausu að stöðvarnar standi og hlaði bíla rafbíla­eigenda þar til Reykja­víkurborg býður út að nýju.“

Reykjavíkurborg hefði átt að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu

Forsaga málsins er rakin í tilkynningu ON en Reykja­víkurborg bauð út uppsetningu og rekstur götu­hleðsla og tók tilboði frá ON sem bauð lægst í verkefnið. Úrskurðar­nefnd útboðs­mála komst síðan að þeirri niður­stöðu eftir kæru Ísorku að Reykja­víkurborg hefði átt að bjóða verkið út á Evrópska efnahags­svæðinu. Ekki hafi verið tekið undir önnur sjónarmið Ísorku.

„Samkvæmt niður­stöðu úrskurðar­nefndar er ON hvorki heimilt að taka gjald fyrir afnot af götu­hleðslunum né að sérmerkja bíla­stæðin sem þær standa við. Í stað þess að slökkva á hleðslunum og þannig gera rafbíla­eigendum sem treysta á umræddar hleðslur erfitt fyrir ákvað ON að hætta að rukka og taka niður merkingar við stæðin. Hleðslur yrðu þá aðgengilegar öllum á meðan næstu skref væru metin. Þannig hlítti ON niður­stöðunni en styddi áfram það mikilvæga verkefni sem orku­skiptin í samgöngum er,“ segir í tilkynningunni.

Ísorka hefur nú aftur sent kvörtun til kæru­nefndarinnar, nú vegna þess hvernig ON hefur brugðist við þeirri niður­stöðu hennar að Reykja­víkurborg hefði átt að bjóða út á evrópska efnahags­svæðinu.

Borgin telur nauðsynlegt að óska eftir því að ON rjúfi strauminn

Í bréfi sem barst ON frá Reykja­víkurborg í morgun segir að vegna athugasemda Ísorku telji borgin nauðsynlegt að óska eftir því að ON rjúfi straum til umræddra hleðslu­stöðva. Þá segir einnig að Reykja­víkurborg hafi farið þess á leit við kærunefnd útboðs­mála að réttar­áhrifum úrskurðarins verði frestað. „Á meðan kærunefnd tekur afstöðu til þeirrar beiðni er ráðlegt að ekki sé aðgengi að raforku á umræddum hleðslu­stöðvum,“ segir í bréfi Reykja­víkurborgar til ON.

ON tekur það sérstak­lega fram í tilkynningunni að fyrir­tækið hafi ekki markaðs­ráðandi stöðu og telur sig því ekki skylt að rukka fyrir götu­hleðslurnar. Bendir fyrir­tækið á að bæði Ísorka og Orkusalan séu með hleðslu­staura víða um borg þar sem rafmagn er gefið.

Þetta „mun leiða til mikilla óþæginda fyrir íbúa borgarinnar“

Reykja­víkurborg hefur einnig sent frá sér tilkynningu um málið en borgin hefur, eins og áður segir, farið fram á frestun réttar­áhrifa úrskurðar kæru­nefndar útboðs­mála frá 11. júní sem kveður á um óvirkni samnings Reykja­víkurborgar við ON um uppsetningu og rekstur á hleðslu­stöðvum frá úrskurðar­degi.

„Uppsetning hleðslu­stöðva og bætt aðgengi að orku víðsvegar um Reykjavík er ætlað að hvetja borgara til orku­skipta í samræmi við markmið borgarinnar á sviði orkumála um að borgin verði kolefnis­laus árið 2040. Fjöldi rafbíla hefur á stuttum tíma farið vaxandi innan Reykja­víkur en samkvæmt tölum frá Félagi íslenskra bifreiða­eigenda voru rafbílar um 45,5 prósent nýskráðra bíla á fyrstu fimm mánuðum 2021.

Uppsetning og rekstur hleðslu­stöðva sem boðnar voru út í útboðinu er ætlað að mæta þörfum þeirra sem ekki geta hlaðið bíla sína við heimili sín og gera þeim kleift að eiga og reka rafbíla. Krafa um tafar­lausa óvirkni samningsins mun leiða til mikilla óþæginda fyrir íbúa borgarinnar sem nota þær 156 hleðslu­stöðvar sem ON rekur samkvæmt samningnum, og munu nú þurfa að loka fyrir aðgang að, þótt óljóst sé hversu lengi sú lokun muni vara,“ segir í tilkynningu Reykja­víkurborgar.

Kanna grundvöll þess að láta reyna á lögmæti úrskurðarins

Reykja­víkurborg telur að sérstakar ástæður réttlæti að beiðni um frestun á réttar­áhrifum verði tekin til greina. Í fyrsta lagi hafi aðal­skylda samningsins um uppsetningu hleðslu­stöðva þegar verið uppfyllt að næstum öllu leyti og þjónusta verið við borgarbúa til samræmis við ákvæði samningsins um nokkurt skeið. Því sé niður­staða úrskurðarins verulega íþyngjandi fyrir aðila máls og íbúa og gesti Reykja­víkur.

Í öðru lagi sé fyrirséð að óvirkni samningsins, jafnvel þótt hún kunni einvörðungu að vara um skamman tíma, muni leiða til þess að eigendur rafbíla sem hafa fjárfest í þeim í trausti þess að eiga auðvelt aðgengi að hraðri hleðslu þeirra eigi nú erfiðara um vik með að nýta sér þá.

Í þriðja lagi hafi ákvörðun kæru­nefndar útboðs­mála frá 22. október síðastliðnum þar sem kröfu Ísorku ehf. um að umrætt útboð yrði stöðvað um stundar­sakir verið hafnað. Báðir samnings­aðilar, Reykja­víkurborg og ON, hafi því í góðri trú haldið áfram með að efna samninginn sem komst á í kjölfar hins kærða útboðs.

Af hálfu Reykja­víkurborgar stendur yfir vinna við að kanna grundvöll þess að láta reyna á lögmæti úrskurðarins sem eins og áður hefur komið fram, lýtur að áætlaðu verðmæti samnings, kostnaðar­áætlun, og hvort bjóða hefði átt út sérleyfis­samning á Evrópska efnahags­svæðinu í stað almenns útboðs sem fór fram innanlands. Samhliða því sé unnið að undir­búningi nýs útboðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár