Margir forsetar í Bandaríkjunum en einungis einn kóngur

Hann er einn þekktasti dægurlaga­söngvari sögunnar. Samdi sjálfur ekki eitt einasta lag og hélt einungis fimm tónleika utan Banda­ríkjanna (í Kanada). Fjörutíu ár eru síðan Elvis Presley, kóngurinn, lést á heimili sínu, Graceland.

Elvis Presley átti alla tíð erfitt með svefn og aðfara­nótt 16. ágúst 1977 var þar engin undan­tekning. Auk þess var hann illa haldinn af tannpínu en þrátt fyrir að hafa bæði tekið svefnlyf (sem hann gerði alltaf) og verkjalyf kom honum ekki blundur á brá. Um nóttina fór hann til tann­læknisins ásamt unnustu sinni, Ginger Alden. Þegar þau komu til baka gat Elvis ekki sofnað. Eftir að þau Ginger höfðu talað dálitla stund um fyrir­hugaða giftingu (sem ekki var búið að dagsetja) tók Elvis bókina „The Scientific Search for the Face of Jesus“ af nátt­borðinu og sagði við unnustuna „ég fer fram á bað að lesa.“ Hún svaraði „allt í lagi en sofnaðu ekki. Þá var klukkan rétt um hálf tíu, skömmu síðar sofnaði Ginger. Þegar hún vaknaði um klukkan 13.30 var Elvis ekki við hlið hennar. Þegar hún opnaði dyrnar á baðherberginu lá Elvis á gólfinu, með bókina. Ginger kallaði strax á aðstoðar­mann Elvis sem reyndi lífgunar­tilraunir en læknir sem kom fljótlega á staðinn sagði að lífi söngvarans væri lokið. Elvis var fluttur á sjúkrahús en um klukkan 16 þennan sama dag kom Vernon Presley, faðir söngvarans út á tröppurnar við Graceland, þar sem mikill mann­fjöldi var saman­kominn. Vernon mælti fjögur orð „Sonur minn er látinn.“

Þessa frásögn er að finna í bók Ginger Aldin „and Ginger“ sem kom út árið 2014. Hún heldur því fram að mjög margt af því sem sagt hafi verið um síðustu ár söngvarans séu víðs fjarri sann­leikanum og hún kannist hreint ekki við margt af því sem komið hefur fram í ótal viðtölum við marga sem þekktu Elvis. Hún segir líka að Elvis hafi átt fáa vini, en margir viðhlæjendur hans hafi verið tilbúnir að tjá sig og þiggja greiðslu fyrir, þegar söngvarinn var látinn.

Ringulreið við útförina

Fréttir af andláti Elvis fóru um allan heim, eins og eldur í sinu. Mikill fjöldi fólks safnaðist saman við Graceland þennan sama dag og þegar söngvarinn var borinn til grafar 18. ágúst voru milli 80 og 90 þúsund manns viðstaddir. Mikil ringul­reið ríkti á staðnum og lögreglan átti fullt í fangi með að hafa stjórn á mann­fjöldanum. Elvis var jarð­settur við hlið móður sinnar (sem lést 1958) í kirkju­garðinum í Memphis en eftir að reynt var að ræna kistunum tveim vikum eftir jarðar­förina voru kisturnar fluttar til Graceland og þar hvílir söngvarinn ásamt foreldrum (faðirinn lést 1979) og föðurömmu. Þar er ennfremur minningar­skjöldur um Jesse Garon, tvíbura­bróður Elvis, en hann lést í fæðingu.

Ótal sögur

Strax eftir andlátið fóru ótal sögur á kreik um dánar­orsök söngvarans. Hann hefði látist vegna ofneyslu lyfja, hann hefði haft leyndan hjarta­galla, þjáðst af meltingar­truflunum sem hefðu að lokum gert út af við hann. Ein sagan sem komst á kreik var á þá leið að þyrla á vegum FBI, bandarísku alríkis­lögreglunnar hefði komið til Graceland með kistu, sem í var gervilík, og söngvarinn, sprell­lifandi, hefði farið með þyrlunni. Orðinn þreyttur á frægðinni og tilbreytingar­lausu lífi og einfald­lega látið sig hverfa. Og sögurnar eru fleiri.

En af hverju allar þessar sögur?

Eins og oft gerist þegar þekktir einstaklingar látast, ekki síst fyrir aldur fram, verða sögurnar til. Engum duldist að síðustu mánuðina sem Elvis lifði hafði hann breyst mikið í útliti, þótt röddin væri söm. Hann hafði þyngst mikið, var þrútinn í andliti, sveittur. Tengdist það lyfja­neyslu, ofáti, sjúkdómum?

Eftir krufningu var tilkynnt að dánar­orsökin hefði verið hjarta­áfall, krufningar­skýrslan verður ekki gerð opinber fyrr en árið 2027, þegar fimmtíu ár verða liðin frá dauða söngvarans.

Alinn upp í fátækt

Elvis Aaron Presley fæddist 8. janúar 1935 í fjörutíu fermetra timbur­húsi í Tupelo Missis­sippi. Fjöl­skyldan var fátæk og faðirinn Vernon stundaði ýmis konar vinnu, móðirin Gladys hugsaði um heimilið og drenginn. Eins og áður sagði lést tvíbura­bróðir Elvis í fæðingu og Gladys gætti Elvis eins og sjáaldurs augna sinna. Árið 1948 flutti fjöl­skyldan til Memphis, Gladys var kirkju­rækin og í kirkjunni komst Elvis í kynni við gospel tónlistina sem hann hélt mikið uppá alla ævi. Presley hjónin fluttu oft milli húsa í Memphis en alltaf innan sama skóla­hverfis, vegna sonarins.

Á árshátíð Humes High School 9. apríl 1953 söng Elvis í fyrsta skipti opinber­lega, það var lagið „Keep them Cold Icy Fingers Off Of Me“. Hann var klappaður upp og söng þá „Till I Waltz Again With You“. Eftir að náminu lauk, í júní 1953, starfaði Elvis um skeið sem vöru­bílstjóri.

That´s All Right

Í júlí­byrjun árið 1954 tók Elvis upp plötu (á eigin kostnað) í Sun Records hljóð­verinu í Memphis, þar sem hann hafði sumarið áður tekið upp tvö lög, sem hann lét þrykkja á plötu og gaf móður sinni.

Þegar hlé var gert á upptökunni 6. júlí 1954 fóru Elvis og hljóðfæra­leikararnir að leika sér með „That´s All Right“, lag sem Elvis þekkti. Útsetning þeirra félaga var mjög breytt frá upphaf­legu útgáfunni, mun rokkaðri. Sam Phillips, eigandi hljóð­versins, hreifst af flutningnum, sérstak­lega söngnum. Hann sagði síðar að hann hefði lengi leitað að hvítum söngvara sem hljómaði eins og þeldökkur og þarna hafði hann fundið söngvara með réttu röddina.

7. júlí, daginn eftir upptökuna var „That´s All Right“ leikið í svæðis­útvarpinu WHBQ. Síma­línurnar hjá útvarps­stöðinni urðu samstundis rauð­glóandi og þátta­stjórn­andinn varð að spila lagið aftur og aftur, samtals fjórtán sinnum áður en þættinum lauk. Elvis gerði útgáfu­samning við Sun Records, grunnurinn að ferli sem ekki á sér margar hlið­stæður var lagður. Hjá Sun Records tók Elvis upp tuttugu lög, upptökur tveggja þeirra hafa glatast.

RCA VICTOR og „Heartbreak Hotel“

Síðsumars 1955 gerðist maður að nafni Tom Parker umboðs­maður Elvis. Parker taldi að Elvis þyrfti að komast á samning hjá stóru útgáfu­fyrirtæki, Sun Records hafði ekki það sem til þurfti, áleit Parker. Í nóvember 1955 keypti RCA útgáfu­samninginn sem Sun Records hafði gert við Elvis, upphæðin var sú langhæsta sem nokkru sinni hafði sést vegna slíks samnings. Strax á fyrsta árinu hjá RCA varð Elvis frægur um víða veröld. RCA sá líka til þess, með útgáfu platna, að Elvis gleymdist ekki meðan hann gegndi herþjónustu á síðari hluta sjötta áratugarins

Hér er ekki ætlunin að rekja sögu „kóngsins“, frá vöggu til grafar en þó rétt að nefna að samtals söng hann um 800 lög inná plötur, lék í 33 kvik­myndum (afar misjöfnum að gæðum) hélt 1500 tónleika, 5 þeirra í Kanada, alla hina í Banda­ríkjunum. Engar tölur eru til um hve margir tónleika­gestir sáu Elvis á tónleikum en talið er að 1,2 milljarðar fólks hafi horft á tónleikana „Aloha from Hawai“ en þetta var fyrsta sjónvarps­útsending sem náði „um víða veröld“.

1 milljarður hljómplatna

Tala seldra platna, geisla­diskar meðtaldir, með söng Elvis Presley losar milljarð. Enginn einn lista­maður hefur selt annað eins. Hann hefur átt 149 lög á bandaríska Billboard vinsælda­listanum og 90 plötur á Hot 100 listanum í Banda­ríkjunum.

Graceland og fjölskyldan

Elvis Presley keypti húsið Graceland árið 1957og flutti þangað ásamt foreldrum sínum. Þetta hús var heimili hans til dauðadags. Húsinu var gefið þetta nafn á dögum þræla­stríðsins, S.E. Toff sem byggði húsið skírði það eftir dóttur sinni Grace. Núverandi Graceland er að stofni frá 1939 en Elvis lét byggja við það, í áföngum.

Þann 1. maí giftist Elvis Priscillu Ann Wagner. Athöfnin fór fram í Las Vegas og tók heilar átta mínútur. Priscilla er fædd í New York árið 1945. Þau Elvis hittust fyrst í Þýska­landi 1959 þegar Elvis var í hernum, foreldrar Priscillu bjuggu þá í Þýska­landi, faðirinn liðs­foringi í bandaríska hernum. Foreldrum Priscillu leist ekki meira en svo á að dóttirin væri að hitta þennan söngvara, sem auk þess væri tíu árum eldri en hún, og vonuðu að þau Elvis og Priscilla myndu gleyma hvort öðru þegar hann færi aftur til Banda­ríkjanna. Það fór hinsvegar svo að Priscilla flutti til Graceland, eftir að Vernon Presley hafði lofað að líta til með henni, að beiðni foreldranna. 1. febrúar 1968 fæddist þeirra eina barn, dóttirin Lise Marie. Elvis og Priscilla skildu árið 1973.

Graceland er í dag safn um Elvis Presley, ævi hans og störf. Graceland safnið var opnað 1982 og síðan hafa 20 milljónir heimsótt það. Fyrr á þessu ári var opnuð ný bygging sem tilheyrir safninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár