„Galið“ að ræða ekki við Sjálfstæðisflokk og „fávitaskapur“ að úthúða Óttarri Proppé

Karl Sigurðsson, fyrr­verandi borgar­fulltrúi, segist hafa fengið „illt í magann" yfir umræðu um ákvörðun Óttarrs Proppé um að fara í formlegar viðræður um ríkis­stjórnar­myndun með Sjálfstæðis­flokknum og Viðreisn.

Óttarr Proppé
Óttarr Proppé Formaður Bjartrar fram­tíðar tók saman við Viðreisn eftir kosn­ingar.

Karl Sigurðsson, fyrr­verandi borgar­fulltrúi Besta flokksins og stjórnar­maður og fram­bjóðandi Bjartrar framtíðar, segir að hann fái „illt í magann“ yfir umræðu um Óttarr Proppé, formann Bjartrar framtíðar, eftir að Óttarr ákvað að ganga til formlegra viðræðna um myndun ríkis­stjórnar með Sjálfstæðis­flokki og Viðreisn.

Karl birti færslu á Facebook í kvöld til varnar Óttarri og mann­kostum hans. 

„Það sem mér svíður hins vegar alveg ofboðs­lega um þessar mundir er hvernig fólk leyfir sér að tala um Óttar bara vegna þess að hann leyfir sér að kanna mögu­leikann á samstarfi með þeim sem fengu stjórnar­myndunar­umboðið frá forsetanum. Orðbragðið sem er notað víða er svo ósmekklegt að ég fæ bara illt í magann og er skapi næst fara í þá rassíu að henda sumum út af vina­listanum mínum.“

Karl tekur ekki dæmi um orðbragð í garð Óttarrs.

Björt framtíð er í oddastöðu við myndun ríkis­stjórnar eftir að flokkar hafa útiokað hver annan. Flokkurinn hafði rætt við Pírata, Samfylkingu og Vinstri græna um myndun bandalags fyrir kosningar og var lögð fram vilja­yfirlýsing um samstarf í kjölfar þess. Eftir kosningar tilkynnti Óttarr Proppé að Björt framtíð færi með Viðreisn á fund Bjarna Benedikts­sonar og að flokkarnir tveir yrðu samstíga í viðræðum um myndun mögulegrar ríkis­stjórnar.

Ríkis­stjórn miðju­flokksins Bjartrar framtíðar með Viðreisn og Sjálfstæðis­flokki yrði sú fyrsta í sögunni með tvo hægri flokkka og má gera ráð fyrir því að hún yrði hægri­sinnaðasta ríkis­stjórn lýðveldis­sögunnar. Karl segist hafa skilning á því að Björt framtíð vinni nú að myndun hægri stjórnar. 

„Í mínum huga væri galið að segja bara þvert nei við þessum samræðum og fullkomlega eðlilegt að kanna hvað fólk hefur að segja og hvort mögulegt er að ná fram stefnu­málum BF í ríkis­stjórn með þessum flokkum - og ef svo er ekki, þá bara sleppa þessu. Við verðum allavega að vera viss um að þetta hafi verið skoðað til hlítar áður en við blásum þetta af. Hvort fólk er sammála þessu er eitt en það er annað ef á að fara úthúða fólki fyrir að tala saman. Það er bara fávita­skapur.“

Færsla Karls í heild

Óttarr Proppé er einn besti maður sem ég þekki. Hann er vandaður, gáfaður, varkár, góðhjartaður og heiðar­legur. Allt frá því við sáum fram á að Besti flokkurinn yrði hluti af borgar­stjórn hefur hann talað um mikilvægi þjónandi forystu og að setja almannahags­muni umfram hagsmuni þröngra hópa og hann hefur hvergi vikið frá því viðhorfi sínu. Nú er hann í framlínu fólks af miðjunni sem er að ræða við hægri flokkana um hugsanlegt stjórnar­samstarf. Í mínum huga væri það ekki óskastaða en ég ætla að leyfa mér að leggja traust mitt í hendur Óttari og anda með nefinu þangað til eitthvað raun­verulegt er að frétta úr þessum viðræðum.

Það sem mér svíður hins vegar alveg ofboðs­lega um þessar mundir er hvernig fólk leyfir sér að tala um Óttar bara vegna þess að hann leyfir sér að kanna mögu­leikann á samstarfi með þeim sem fengu stjórnar­myndunar­umboðið frá forsetanum. Orðbragðið sem er notað víða er svo ósmekklegt að ég fæ bara illt í magann og er skapi næst fara í þá rassíu að henda sumum út af vina­listanum mínum.

Í mínum huga væri galið að segja bara þvert nei við þessum samræðum og fullkomlega eðlilegt að kanna hvað fólk hefur að segja og hvort mögulegt er að ná fram stefnu­málum BF í ríkis­stjórn með þessum flokkum - og ef svo er ekki, þá bara sleppa þessu. Við verðum allavega að vera viss um að þetta hafi verið skoðað til hlítar áður en við blásum þetta af. Hvort fólk er sammála þessu er eitt en það er annað ef á að fara úthúða fólki fyrir að tala saman. Það er bara fávita­skapur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár